Heimsókn frá EFTA- dómstólnum
1. júní 2026
Í maí áttu Páll Hreinsson, forseti EFTA-dómstólsins, og Ólafur Jóhannes Einarsson, skrifstofustjóri dómstólsins, fund með dómurum réttarins, skrifstofustjóra og öðrum starfsmönnum réttarins. Páll og Ólafur fjölluðu um það sem helst væri á döfinni hjá EFTA-dómstólnum og á vettvangi EES-samningsins. Einnig gerðu þeir grein fyrir nokkrum nýlegum og áhugaverðum dómum Evrópudómstólsins.
