Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Heimsókn frá Áfrýjunardómstól Riga

17. maí 2023

Hæstiréttur fékk í gær heimsókn frá Áfrýjunardómstól Riga (Riga Regional Court) en gestirnir voru þær Daiga Vilsone, forseti réttarins, Līga Blūmiņa, formaður einkamáladeildar réttarins, Ingūna Amoliņa, starfandi formaður sakamáladeildar réttarins og Svetlana Beļajeva, dómari við einkamáladeild réttarins.

Benedikt Bogason forseti Hæstaréttar, Ólöf Finnsdóttir skrifstofustjóri og Linda Ramdani aðstoðarmaður dómara tóku á móti þeim, kynntu þeim dómhúsið og starfsemi Hæstaréttar. Þá voru góðar umræður um hvað er líkt og hvað ólíkt með réttarkerfum Íslands og Lettlands og framþróun hjá dómstólum, einkum á sviði tækninýjunga og rafrænnar málsmeðferðar.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar