Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Fundur forseta æðstu dómstóla Evrópu

16. júní 2026

Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, sótti fund samtaka forseta æðstu dómstóla aðildarríkja Evrópusambandsins (Network of the Presidents of the Supreme Judicial Courts of the European Union) sem haldinn var í Limassol á Kýpur 11. til 13. júní. EFTA-ríkin Ísland, Noregur og Liechtenstein, sem eiga aðild að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, ásamt Bretlandi eiga aukaaðild að samtökunum.

Fundurinn hófst með fyrri málstofu hans þar sem fjallað var um réttarríkið og þær áskoranir sem það stendur frammi fyrir á 21. öldinni. Þeirri umræðu stjórnaði forseti samtakanna, Donal O‘Donnel, forseti Hæstaréttar Írlands. Í pallborði þessarar málstofu tóku þátt dr. Tatu Leppänen, forseti Hæstaréttar Finnlands, dr. Síofra O‘Leary, fyrrverandi forseti Mannréttindadómstólsins, Maciej Szpunar, aðallögsögumaður Evrópudómstólsins og Richard Wagner, forseti Hæstaréttar Kandada. Á síðari málstofunni var fjallað um verndun einstaklinga á stafræna sviðinu – áhrif reglugerðar Evrópusambandsins um stafræna þjónustu. Um það efni fluttu erindi dr. Danguolė Bublienė, forseti Hæstaréttar Litháen, og dr. Savvas S. Papasavvas, varaforseti Almenna dómstóls Evrópusambandsins.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar