Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Þessi frétt er meira en árs gömul

EES-málflutningskeppnin haldin í Hæstarétti og Héraðsdómi Reykjavíkur

18. mars 2024

EES-málflutningskeppnin er haldin af Eftirlitsstofnun EFTA í samvinnu við EFTA-dómstólinn og háskólana á Íslandi og í Noregi. Keppnin fór fram samtímis í Hæstarétti og Héraðsdómi Reykjavíkur.

Um síðustu helgi fór fram hér á landi EES-málflutningskeppnin sem haldin er af Eftirlitsstofnun EFTA í samvinnu við EFTA-dómstólinn og háskólana á Íslandi og í Noregi. Keppnin fór fram samtímis í Hæstarétti og Héraðsdómi Reykjavíkur. Þetta var í níunda sinn sem keppnin var haldin en hún fer fram árlega og til skiptis á Íslandi og í Noregi. Keppnin var fyrst haldin árið 2015.

Í keppninni tóku þátt lið frá Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og háskólunum í Osló, Björgvin og Stafangri. Lið Háskólans í Reykjavík bar sigur úr býtum. Í sigurliðinu voru Anna Mae Manning, Daniela Yolanda Melara Lara, Julia Scandolo, Nikoleta Pohankova, og Pétur Magnús Pétursson, en hann var valinn ræðumaður keppninnar.

Í úrslitaviðureigninni sátu í dómi Páll Hreinsson, forseti EFTA-dómstólsins, Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, Árni Páll Árnason, stjórnarmaður í Eftirlitsstofnun EFTA, Hildur Hjörvar og Ciarán Burke, lögfræðingar hjá Eftirlitsstofnun EFTA og lögmennirnir Helga Melkorka Óttarsdóttir og Dóra Sif Tynes. Meðfylgjandi myndir voru teknar við þetta tækifæri.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar