Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Dómur um miskabætur vegna umsóknar um notendastýrða persónulega aðstoð

5. maí 2022

Í gær kvað Hæstiréttur upp dóm í máli A gegn Mosfellsbæ þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að sveitarfélaginu bæri að greiða miskabætur vegna meðferðar og afgreiðslu á umsókn hans 4. október 2018 um notendastýrða persónulega aðstoð á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Hæstiréttur taldi að Mosfellsbær hefði veitt takmarkaðar skýringar á töfum sem urðu við meðferð og vinnslu umsóknarinnar. Við mat á þýðingu tafanna yrði að hafa í huga að allt frá því að umsókn A barst Mosfellsbæ hefði hann verið í brýnni þörf fyrir skjóta afgreiðslu og sveitarfélaginu mátt vera það ljóst. Hæstiréttiréttur taldi því að meðferð umsóknarinnar hefði farið verulega úr skorðum og var sveitarfélaginu gert að greiða A 700.000 krónur í miskabætur.

Dóminn í heild sinni má lesa hér.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar