Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Dómur um heimild til uppgreiðsluþóknunar

15. febrúar 2023

Í dag kvað Hæstiréttur upp dóm í máli þar sem deilt var um heimild ÍL-sjóðs til að krefja Ó og M um þóknun við uppgreiðslu á húsnæðisláni sem þau höfðu tekið í júlí 2008 hjá sjóðnum.

Ágreiningur málsins laut einkum að afleiðingum þess að í skilmálum lánssamnings aðila skorti ákvæði um útreikning þóknunarinnar þrátt fyrir lagaskyldu þar um og hvort Ó og M ættu af þeirri ástæðu rétt á endurgreiðslu hennar.

Í dómi Hæstaréttar kom meðal annars fram að við heildarmat á efni veðbréfsins, stöðu aðila, atvika við samningsgerðina og atvika sem síðar komu til yrði ekki fallist á með Ó og M að það teldist ósanngjarnt eða andstætt góðri viðskiptavenju að Í bæri fyrir sig skilmála veðbréfsins um uppgreiðsluþóknun. Því væru ekki efni til að víkja skilmála veðbréfsins og samkomulagi aðila um greiðslu uppgreiðsluþóknunar til hliðar á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936. Var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sýknu Í af kröfu Ó og M um endurgreiðslu uppgreiðsluþóknunar að öllu leyti eða að hluta og um málskostnað.

Dóminn í heild sinni má lesa hér.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar