Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Dómur um beitingu ákvæðis almennra hegningarlaga um brot í nánu sambandi

30. mars 2022

Í dag kvað Hæstiréttur upp dóm í máli þar sem sú háttsemi ákærða að hafa veist að fyrrverandi kærustu sinni á heimili hennar, ýtt henni þannig að hún féll niður stiga, tekið í hár hennar, skallað hana í höfuðið og tekið hana kverkataki með nánar tilgreindum afleiðingum var talin brot í nánu sambandi en ekki minniháttar líkamsárás eins og gert var í dómi Landsréttar.

Hæstiréttur vísaði til þess að brotaþoli þyrfti ekki að verða fyrir beinum eða sjáanlegum líkamsáverkum eða öðru tjóni svo um væri að ræða brot í nánu sambandi. Það gæti þó komið til skoðunar við mat á grófleika brots. Áverkar hefðu verið víðs vegar um líkama brotaþola þótt hver um sig hefði ekki talist verulegur. Þá væri ljóst að hún hefði hlotið áverka vegna fallsins og hefði sú háttsemi ákærða verið einkar alvarleg.

Árásin hefði í heild sinni verið til þess fallin að vekja mikla ógn hjá brotaþola en jafnframt væri fram komið að hún hefði orðið fyrir andlegu áfalli vegna árásarinnar.

Hæstiréttur taldi að ákærði hefði með atlögunni á alvarlegan hátt og með ofbeldi ógnað heilsu brotaþola og velferð. Var refsing ákærða þyngd og ákveðin fangelsi í tíu mánuði en fullnustu hennar frestað meðal annars vegna tafa á meðferð málsins.

Dóminn má í heild sinni lesa

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar