Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-120

Miðvikudagurinn 21. október 2026

Bílamiðstöðin ehf. (Björgvin Þórðarson lögmaður)

gegn

Frumherja hf. (Gunnar Egill Egilsson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Skaðabótamál. Viðurkenningarkrafa. Sönnun. Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ásgerður Ragnarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Með beiðni 22. júlí 2026 leitar Bílamiðstöðin ehf. leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 25. júní sama ár í máli nr. 107/2025: Frumherji hf. gegn Bílamiðstöðinni ehf. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.

3. Leyfisbeiðandi, sem flytur inn bifreiðir til sölu, höfðaði mál þetta og krafðist viðurkenningar á rétti til skaðabóta úr hendi gagnaðila. Byggði hann kröfu sína á því að bifreið í hans eigu hefði orðið rafmagnslaus í vörslum gagnaðila við skráningarskoðun hennar. Starfsmaður gagnaðila hefði gefið henni start með tæki sem stillt hefði verið á 24 volta spennu, en rafkerfi bifreiðarinnar einungis verið gert fyrir 12 volta spennu. Bifreiðin hefði því orðið óökuhæf og viðgerðarkostnaður áætlaður 7.956.824 krónur. Lýtur ágreiningur aðila meðal annars að því hvort starfsmaður gagnaðila eða einhver á vegum leyfisbeiðanda hafi tengt rafmagnskapla við bifreiðina og hvort starfsmenn gagnaðila hafi að öðru leyti sýnt af sér saknæma háttsemi sem leitt hafi til tjóns á bifreiðinni.

4. Með héraðsdómi var fallist á kröfu leyfisbeiðanda. Landsréttur komst að gagnstæðri niðurstöðu. Í dómi réttarins kom fram að leyfisbeiðanda hefði ekki tekist sönnun um að starfsmaður gagnaðila hefði tengt tækið við bifreiðina umrætt sinn. Þá hefðu ekki verið færð rök fyrir því að starfsmenn gagnaðila hefðu að öðru leyti sýnt af sér saknæma háttsemi sem leitt hefði til tjóns á bifreiðinni. Væru því ekki skilyrði til að fallast á viðurkenningarkröfu leyfisbeiðanda og gagnaðili sýknaður af kröfum hans.

5. Leyfisbeiðandi byggir á því að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi og efni og að málsmeðferð fyrir réttinum hafi verið stórlega ábótavant. Þá hafi málið verulegt almennt gildi enda liggi ekki fyrir dómaframkvæmd Hæstaréttar um sérfræðiábyrgð faggilts þjónustuaðila sem láti viðskiptamanni í té hættulegan búnað sem krefjist sérþekkingar. Þá hefði úrlausn Hæstaréttar fordæmisgildi fyrir skoðunarstöðvar, verkstæði og tækjaleigur og um beitingu 59. gr. laga nr. 91/1991. Loks varði málið sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda.

6. Að virtum gögnum málsins verður hvorki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að málsmeðferð fyrir Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant eða að dómurinn sé bersýnilega rangur, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar