Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

Mál nr. 2021-76

Þriðjudagurinn 23. mars 2021

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari)

gegn

Steingrími Jóni Ólafssyni (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Hafnað. Vopnalagabrot

Ákvörðun Hæstaréttar

Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ingveldur Einarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.

Með beiðni 19. febrúar 2021 sem barst ríkissaksóknara 26. sama mánaðar leitar Steingrímur Jón Ólafsson leyfis Hæstaréttar til að áfrýja dómi Landsréttar 29. janúar 2021 í málinu nr. 607/2019: Ákæruvaldið gegn Steingrími Jóni Ólafssyni á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákæruvaldið leggst gegn beiðninni.

Með dómi Landsréttar var leyfisbeiðandi sakfelldur fyrir vopnalagabrot með því að hafa í heimildarleysi átt og haft í vörslum sínum hálfsjálfvirkan riffil og rafstuðbyssu. Refsing leyfisbeiðanda var ákveðin 100.000 króna sekt í ríkissjóð auk þess sem honum var gert að sæta upptöku nánar tilgreindra muna.

Leyfisbeiðandi telur að skilyrði 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 séu uppfyllt. Hann byggir á því að vísa eigi málinu frá héraðsdómi vegna ágalla á rannsókn þess. Þá byggir hann á því að Landsréttur hafi beitt réttarreglum með röngum hætti og að sönnunarmat hafi verið rangt. Að auki telur leyfisbeiðandi að óháð sakfellingu beri að fella sekt niður og leggja allan sakarkostnað á ríkissjóð.

Að virtum gögnum málsins verður ekki séð að það lúti að atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu eða að mjög mikilvægt sé af öðrum ástæðum að fá úrlausn Hæstaréttar um þau þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Þá eru ekki efni til að beita heimild 3. málsliðar 4. mgr. sömu lagagreinar í málinu. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar