Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-133
Þriðjudagurinn 27. október 2026
Abíll ehf. (Sveinn Jónatansson lögmaður)
gegn
HS Veitum hf. (Hannes J. Hafstein lögmaður)
Lykilorð
Kæruleyfi. Aðför. Aðfarargerð. Fjárnám. Innheimtukostnaður. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ásgerður Ragnarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Með beiðni 24. september 2026 leitar Abíll ehf. leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 4. mgr. 95. gr. laga nr. 90/1989 um aðför, til að kæra úrskurð Landsréttar 10. sama mánaðar í máli nr. 507/2026: Abíll ehf. gegn HS Veitum hf. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.
3. Ágreiningur aðila lýtur að fjárnámi sem gert var í bifreið leyfisbeiðanda til tryggingar greiðslu eftirstöðva kröfu gagnaðila samkvæmt tveimur reikningum. Leyfisbeiðandi krafðist úrlausnar héraðsdómara um aðfarargerðina. Byggði hann meðal annars á því að fjárnámið hefði verið ólögmætt þar sem krafa gagnaðila hefði verið að fullu gerð upp með greiðslu 20. ágúst 2025, áður en aðfarargerðin fór fram. Grundvallaðist sú afstaða hans á því að hann hefði ekki fengið innheimtuviðvörun vegna skuldarinnar áður en honum var birt greiðsluáskorun 15. sama mánaðar. Liti hann því á greiðsluáskorunina sem innheimtuviðvörun samkvæmt 7. gr. innheimtulaga nr. 95/2008 og honum því heimilt að greiða alla skuldina innan tíu daga frests að viðbættum kostnaði við innheimtuviðvörunina. Krafðist hann þess að ákvörðun sýslumanns yrði felld úr gildi og að hafnað yrði kröfu gagnaðila um fjárnám.
4. Með úrskurði héraðsdóms var kröfum leyfisbeiðanda hafnað og staðfesti Landsréttur þá niðurstöðu. Í úrskurði réttarins var lagt til grundvallar að innheimtu skuldarinnar hefði verið hagað til samræmis við innheimtulög áður en löginnheimta hófst. Vísaði rétturinn til þess að lögð hefðu verið fram afrit af tveimur innheimtuviðvörunum, fjórum milliinnheimtubréfum og tveimur innheimtubréfum sem öll bæru með sér að hafa verið send á aðsetur leyfisbeiðanda. Væri því ótrúverðugur sá málatilbúnaður leyfisbeiðanda að ekkert bréfanna hefði borist honum, sér í lagi þar sem þau hefðu verið send af þremur aðilum. Krafa leyfisbeiðanda hefði því ekki verið gerð upp að fullu með greiðslu hans 20. ágúst 2025 enda hefði innheimtukostnaður þá verið fallinn á kröfuna, auk dráttarvaxta og annars kostnaðar, sem greiðslan hefði ekki tekið mið af. Við frekari innheimtu kröfunnar hefði því verið rétt að líta svo á að greiðslan hefði falið í sér innborgun á skuld leyfisbeiðanda. Hinn kærði úrskurður var því staðfestur.
5. Leyfisbeiðandi byggir á því að skilyrði 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 séu uppfyllt í málinu. Málið varði verulega almannahagsmuni enda sé um að ræða ágreining um túlkun innheimtulaga, sem sett hafi verið til að verja skuldara gegn óhóflegum og óeðlilegum kostnaði vegna innheimtuaðgerða. Sakarefnið kalli á úrlausn Hæstaréttar um sönnunarbyrði aðila þegar sá sem innheimta beinist að hafni því að hafa fengið innheimtuviðvörun samkvæmt 7. gr. laganna. Mikilvægt sé að Hæstiréttur taki málið til efnislegrar úrlausnar til þess að veita fordæmi sem tryggi að innheimtulög nái tilgangi sínum. Þá sé úrskurður Landsréttar rangur og fái hann að standa skapi hann fordæmi sem skaði mikilvæga almannahagsmuni.
6. Að virtum gögnum málsins verður ekki talið að úrlausn um kæruefnið geti haft fordæmisgildi þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991. Þá eru ekki efni til að beita heimild 3. málsliðar sömu málsgreinar á grundvelli þess að úrskurður Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni. Beiðni um kæruleyfi er því hafnað.