Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-135
Þriðjudagurinn 3. nóvember 2026
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og dánarbú A (Óskar Sigurðsson lögmaður)
gegn
B (Steingrímur Þormóðsson lögmaður)
Lykilorð
Kæruleyfi. Dómkvaðning matsmanna. Sönnunarfærsla. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Sigurður Tómas Magnússon og Skúli Magnússon.
2. Með beiðni 1. október 2026 leita Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og dánarbú A leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að kæra úrskurð Landsréttar 18. september sama ár í máli nr. 604/2026: B gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf. og dánarbúi A. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.
3. Gagnaðili höfðaði mál þetta til heimtu miskabóta og viðurkenningar á skaðabótaskyldu leyfisbeiðenda vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í umferðarslysi árið 2019. Undir rekstri málsins í héraði öfluðu aðilar matsgerða dómkvadds manns sem lagðar voru fram í þinghaldi 12. nóvember 2024. Í því þinghaldi lagði lögmaður leyfisbeiðenda fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna til að meta orsakatengsl milli umferðarslyssins og einkenna varnaraðila og umfang ætlaðs miska af völdum slyssins. Dómkvaddir voru tveir bæklunarlæknar til að vinna matið og var matsgerð þeirra lögð fram á dómþingi 21. apríl 2026. Í sama þinghaldi lagði lögmaður gagnaðila fram matsbeiðni sem leyfisbeiðendur hafa mótmælt, einkum á grundvelli þess að hún sé bersýnilega tilgangslaus til sönnunar þar sem hún lúti að sömu atriðum og metin voru í matsgerð bæklunarlæknanna. Ágreiningur þessa þáttar málsins lýtur að því hvort fallast skuli á matsbeiðni gagnaðila.
4. Með úrskurði héraðsdóms var því hafnað að dómkvaðning matsmanna á grundvelli matsbeiðni gagnaðila næði fram að ganga þar sem þau atriði sem meta ætti samkvæmt henni höfðu þegar verið metin af fyrrnefndum bæklunarlæknum. Yrði því að telja að um þarflausa sönnunarfærslu væri að ræða, sbr. 3. mgr. 46. gr. laga nr. 91/1991. Landsréttur komst að gagnstæðri niðurstöðu. Byggði rétturinn á því að lög nr. 91/1991 legðu ekki sérstakar hömlur við því að umbeðið mat færi fram. Þá yrði heldur ekki fullyrt á þessu stigi málsins að matsgerð samkvæmt matsbeiðninni yrði bersýnilega tilgangslaus til sönnunar, en gagnaðili bæri áhættuna af sönnunargildi hennar og kostnað af öflun hennar. Var því fallist á beiðni gagnaðila um dómkvaðningu matsmanna.
5. Leyfisbeiðendur byggja á því að skilyrði 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 séu uppfyllt í málinu. Ágreiningsefnið hafi fordæmisgildi um sönnunarfærslu og reglur um dómkvaðningu undirmatsmanna samkvæmt 61. gr. laganna og um yfirmat samkvæmt 64. gr. þeirra. Þá sé úrlausn Landsréttar bersýnilega röng. Þannig byggi úrskurður Landsréttar á rangri túlkun á 3. mgr. 46. gr. laga nr. 91/1991. Landsréttur hafi litið fram hjá því að hið umbeðna mat laut að nákvæmlega sömu matsatriðum og dómkvaddir matsmenn höfðu þegar skilað matsgerð um, auk þess sem matsspurningar væru leiðandi. Loks hafi kæruefnið grundvallarþýðingu fyrir meðferð málsins.
6. Að virtum gögnum málsins verður ekki talið að úrlausn um kæruefnið varði mikilsverða almannahagsmuni, geti haft fordæmisgildi eða grundvallarþýðingu fyrir meðferð málsins þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991. Þá eru ekki efni til að beita heimild 3. málsliðar sömu málsgreinar á grundvelli þess að úrskurður Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi eða efni. Beiðni um kæruleyfi er því hafnað.