Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-128
Fimmtudagurinn 29. október 2026
A (Ólafur Örn Svansson lögmaður)
gegn
Sjóvá-Almennum tryggingum hf. (Óskar Sigurðsson lögmaður)
Lykilorð
Áfrýjunarleyfi. Skaðabætur. Líkamstjón. Varanleg örorka. Árslaun. Viðmiðunartekjur. Samþykkt
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Sigurður Tómas Magnússon og Skúli Magnússon.
2. Með beiðni leitar A leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 17. sama mánaðar í máli nr. 450/2025: Sjóvá-Almennar tryggingar hf. gegn A. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.
3. Mál þetta lýtur að ágreiningi aðila um hvaða tekjuviðmið skuli lagt til grundvallar við ákvörðun bóta til leyfisbeiðanda, úr frjálsri ábyrgðartryggingu vinnuveitanda hans hjá gagnaðila, fyrir varanlega örorku vegna vinnuslyss sem leyfisbeiðandi varð fyrir í október 2019. Leyfisbeiðandi hafði þá starfað á Íslandi í rúma fjóra mánuði.
4. Með héraðsdómi var fallist á kröfu leyfisbeiðanda um að meta skyldi árslaun hans sérstaklega samkvæmt 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Miðað var við þau laun sem leyfisbeiðandi hafði haft í starfi sínu hjá vátryggingartaka. Landsréttur taldi hins vegar ósannað að óvenjulegar aðstæður hefðu verið fyrir hendi í skilningi fyrrnefndrar lagagreinar þannig að annar mælikvarði væri réttari á líklegar framtíðartekjur leyfisbeiðanda en lágmarksviðmið 3. mgr. sömu greinar, enda yrði ekki talið að leyfisbeiðandi hefði á slysdegi markað sér svo ákveðinn starfsvettvang hér á landi að víkja bæri frá meginreglunni. Var gagnaðili því sýknaður af kröfum leyfisbeiðanda.
5. Leyfisbeiðandi byggir á því að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi um það hvernig meta skuli árslaun samkvæmt 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga þegar tjónþoli hefur takmarkaða atvinnusögu hér á landi og þá einkum hvaða kröfur verði gerðar til hans um sönnun á framtíðaráformum sínum. Þá telur hann niðurstöðu Landsréttar í ósamræmi við dómaframkvæmd Hæstaréttar. Líta verði sérstaklega til sjónarmiða um að lágmarksviðmið 3. mgr. 7. gr. laganna hafi ekki fylgt almennri launaþróun en í tilviki leyfisbeiðanda leiði beiting viðmiðsins til þess að reiknuð fjárhæð bóta fyrir varanlega örorku verði lægri en greiddar bætur úr slysatryggingu launþega sem komi til frádráttar. Í öðru lagi byggir leyfisbeiðandi á því að verulegir annmarkar hafi verið á málsmeðferð og úrlausn Landsréttar sem felist í því að rökstuðning skorti fyrir niðurstöðu um sýknu gagnaðila af þrautarvarakröfu leyfisbeiðanda. Í forsendum dómsins sé ekki leyst efnislega úr þeirri kröfu en Landsrétti hafi borið að taka afstöðu til hennar að frágengnum aðal- og varakröfum. Jafnframt séu annmarkar á málskostnaðarákvörðun Landsréttar þar sem ekkert tillit hafi verið tekið til kostnaðar leyfisbeiðanda af öflun matsgerðar um framtíðarsjúkrakostnað. Loks byggir leyfisbeiðandi á því að málið varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni sína í ljósi þess líkamstjóns sem hann hafi orðið fyrir og þeirra áhrifa sem niðurstaða um tekjuviðmið hafi á fjárhæð bóta honum til handa.
6. Að virtum gögnum málsins verður talið að á dómi Landsréttar kunni að vera þeir ágallar að rétt sé að samþykkja beiðni um áfrýjun á grundvelli 4. málsliðar 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Beiðnin er því samþykkt.