Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

Mál nr. 2026-66

Þriðjudagurinn 9. júní 2026

Rafver ehf. (Árni Ármann Árnason lögmaður)

gegn

Heilsunni #1 ehf. (Fjölnir Ólafsson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Lausafjárkaup. Umboð. Stöðuumboð. Tilboð. Samningur. Aðild. Galli. Vanefnd. Riftun. Endurgreiðsla. Samþykkt

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Sigurður Tómas Magnússon, Karl Axelsson og Skúli Magnússon.

2. Með beiðni 21. apríl 2026 leitar Rafver ehf. leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 26. mars sama ár í máli nr. 564/2025: Heilsan #1 ehf. gegn Rafveri ehf. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.

3. Í málinu deila aðilar um hvort bindandi samningur hafi komist á um kaup gagnaðila á gólfþvottavél af leyfisbeiðanda á grundvelli stöðuumboðs starfsmanns leyfisbeiðanda og jafnframt um hvort skilyrði riftunar og endurgreiðslu kaupverðs séu uppfyllt. Gagnaðili taldi vélina haldna verulegum göllum og lýsti yfir riftun á samningnum. Hefur hann höfðað mál þetta til endurgreiðslu kaupverðs úr hendi leyfisbeiðanda, sbr. 64. gr. laga nr. 50/2000 um lausafjárkaup. Með héraðsdómi var leyfisbeiðandi sýknaður á grundvelli aðildarskorts þar sem starfsmaður hans hefði farið út fyrir stöðuumboð sitt þegar hann seldi gagnaðila vélina og leyfisbeiðandi því ekki skuldbundinn af þeim löggerningi.

4. Landsréttur komst að öndverðri niðurstöðu og féllst á endurgreiðslukröfu gagnaðila. Vísaði rétturinn til þess að ágreiningslaust væri að leyfisbeiðandi seldi ekki þær gólfþvottavélar sem gagnaðili keypti greint sinn og því hefði starfsmaðurinn farið út fyrir stöðuumboð sitt er hann seldi gagnaðila vélina. Réðist skuldbindingargildi löggerningsins af því hvort gagnaðila hefði verið ljóst eða mátt vera ljóst að starfsmaðurinn hefði farið út fyrir stöðuumboð sitt þegar samningur komst á. Komst rétturinn að því að svo hefði ekki verið og leyfisbeiðandi því bundinn við samning þann sem starfsmaðurinn gerði við gagnaðila.

5. Leyfisbeiðandi byggir á því að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi um stöðuumboð og þær reglur sem gildi þegar starfsmaður lögaðila fari út fyrir það. Þá sé dómur Landsréttar bersýnilega rangur að formi og efni. Landsréttur hafi ranglega samsamað leyfisbeiðanda við fyrrverandi starfsmann sinn eftir að ráðningarsambandi lauk. Er því til stuðnings meðal annars vísað til 15. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, um að starfsmaður hafi ekki stöðuumboð hjá fyrrverandi vinnuveitanda sínum eftir að ráðningarsambandi lýkur. Túlkun réttarins á reglum um stöðuumboð sé ekki í samræmi dómaframkvæmd og fræðiskrif. Rétturinn hafi auk þess gert of vægar sönnunarkröfur til gagnaðila um galla vélarinnar. Loks varði sakarefnið sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda.

6. Að virtum gögnum málsins verður litið svo á að dómur í því kunni að hafa verulegt almennt gildi meðal annars um túlkun reglna um stöðuumboð og mögulega skilyrði riftunar og endurgreiðslu kaupverðs þannig að fullnægt sé skilyrðum 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því samþykkt.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar