Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

Mál nr. 2026-48

Þriðjudagurinn 12. maí 2026

Osh ehf. (Skúli Sveinsson lögmaður)

gegn

Birgi Engilbertssyni og Sjóvá-Almennum tryggingum hf. (Óskar Sigurðsson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Fasteign. Byggingarstjóri. Skaðabótamál. Skaðabótaábyrgð. Tjón. Ábyrgðartrygging. Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Sigurður Tómas Magnússon og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

2. Með beiðni 1. apríl 2026 leitar Osh ehf. leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 12. mars sama ár í máli nr. 117/2025: Osh ehf. gegn Birgi Engilbertssyni og Sjóvá-Almennum tryggingum hf. Gagnaðilar leggjast gegn beiðninni.

3. Ágreiningur aðila lýtur að því hvort gagnaðili Birgir beri skaðabótaábyrgð sem byggingarstjóri gagnvart leyfisbeiðanda á því sem aflaga fór við byggingu sumarhúss að Eyjatúni 18 í Kjósarhreppi. Gagnaðili Birgir er tryggður ábyrgðartryggingu vegna byggingaframkvæmdarinnar hjá gagnaðila Sjóvá-Almennum tryggingum hf.

4. Landsréttur staðfesti héraðsdóm um sýknu gagnaðila af kröfum leyfisbeiðanda. Landsréttur rakti að ekki yrði ráðið af gögnum málsins að gagnaðili Birgir hefði haft frekari aðkomu að byggingu sumarhússins en að sækja um lögboðna ábyrgðartryggingu. Hann hefði hvorki undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína, sbr. 4. tölulið 1. mgr. 13. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki né hefði verið gerður skriflegur samningur við hann um byggingarstjórn, sbr. 2. mgr. 27. gr. sömu laga. Þá lægi ekkert fyrir um að hann hefði verið skráður byggingarstjóri að byggingunni hjá byggingarfulltrúa eða verið í nokkrum samskiptum við byggingarfulltrúa eftir að yfirlýsingu um ábyrgðartryggingu hefði verið komið á framfæri við embættið. Jafnframt muni gagnaðili Birgir ekki hafa komið á byggingarstað fyrr en hann var kallaður til eftir að húsið var fokið. Fyrir héraðsdómi bar gagnaðili Birgir um að hann minntist þess ekki að húsið eða framvinda verksins hefði komið til tals milli hans og fyrirsvarsmanns leyfisbeiðanda og að honum hefði verið ókunnugt um að leyfisbeiðandi hefði keypt sumarhúsið af fyrri eiganda. Þótt gagnaðili Birgir hefði fallist á að taka að sér byggingarstjórn hússins og keypt lögboðna ábyrgðartryggingu í því skyni leit Landsréttur svo á að þau áform hefðu ekki gengið eftir auk þess sem skilyrðum byggingarleyfis hefði aldrei verið fullnægt. Landsréttur komst því að þeirri niðurstöðu að gagnaðili Birgir hefði ekki gegnt starfi byggingarstjóra við byggingu hússins og gæti því ekki borið skaðabótaábyrgð sem byggingarstjóri gagnvart leyfisbeiðanda á því sem aflaga fór við bygginguna.

5. Leyfisbeiðandi telur að málið varði í grundvallaratriðum stöðu byggingarstjóra og ábyrgðartryggingu hans en veruleg óvissa sé um þá stöðu í ljósi dóms Landsréttar. Leyfisbeiðandi telur að gagnaðili Birgir hafi orðið byggingarstjóri um leið og hann samþykkti að taka að sér verkið og að hann hafi tekið út og viðhaldið vátryggingu vegna þeirrar byggingarstjórnunar sinnar um árabil. Leyfisbeiðandi telur málið hafa fordæmisgildi auk þess sem niðurstaða Landsréttar sé augljóslega röng að efni til. Í öllu falli sé ekki útilokað að dóminum verði breytt verulega.

6. Að virtum gögnum málsins verður hvorki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi eða efni, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar