Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-124
Mánudagurinn 21. september 2026
Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari)
gegn
Davíð Páli Sigurðssyni (Björgvin Jónsson lögmaður)
Lykilorð
Áfrýjunarleyfi. Brot í nánu sambandi. Börn. Líkamsárás. Miskabætur. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Með beiðni 27. júlí 2026 leitar Davíð Páll Sigurðsson leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 4. júní sama ár í máli nr. 376/2025: Ákæruvaldið gegn Davíð Páli Sigurðssyni. Leyfisbeiðanda var birtur dómurinn 29. júní 2026. Ákæruvaldið leggst gegn beiðninni.
3. Leyfisbeiðandi var ákærður fyrir brot í nánu sambandi gagnvart þáverandi stjúpsonum sínum, A og B, á tímabilinu 6. mars 2013 til 25. nóvember 2019. Var honum gefið að sök að hafa, aðallega á sameiginlegu heimili þeirra, ítrekað, endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð þeirra með nánar tilgreindu líkamlegu og andlegu ofbeldi. Með þeirri háttsemi sinni hafi hann ítrekað misþyrmt og misboðið þeim þannig að líkamlegri og andlegri heilsu þeirra var hætta búin, sýnt af sér vanvirðandi háttsemi, ruddalegt og ósiðlegt athæfi gagnvart þeim, beitt þá líkamlegum refsingum, móðgað og sært. Háttsemin var aðallega talin varða við 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en til vara 98. gr. og 1., sbr. 3., mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
4. Með héraðsdómi var leyfisbeiðandi sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum var gefin að sök á tímabilinu frá 5. apríl 2016 til 1. apríl 2019 að öðru leyti en því að hann var sýknaður af háttsemi samkvæmt þremur undirliðum ákæru. Þótti framburður brotaþola trúverðugur og fengi stoð í framburði annarra vitna. Framburður leyfisbeiðanda var hins vegar metinn ótrúverðugur. Þá var leyfisbeiðandi sýknaður vegna háttsemi á tímabilinu fyrir 5. apríl 2016 og eftir 1. apríl 2019. Refsing var ákveðin fangelsi í 12 mánuði og leyfisbeiðanda gert að greiða brotaþolum miskabætur. Landsréttur staðfesti dóm héraðsdóms.
5. Leyfisbeiðandi byggir á því að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni og því séu skilyrði 3. málsliðar 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 uppfyllt. Málsmeðferð fyrir Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant enda hafi hún brotið gegn réttindum sem leyfisbeiðandi eigi að njóta samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. og 2. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá hafi málið ekki hlotið eiginlega endurskoðun fyrir Landsrétti. Loks vísar leyfisbeiðandi til þess að í frumvarpi því er bætti 1. mgr. 218. gr. b við almenn hegningarlög segi að virða skuli ofbeldisbrot í nánum samböndum heildstætt og eftir atvikum án þess að sanna þurfi hvert og eitt tilvik fyrir sig. Mikilvægt sé að Hæstiréttur skýri þær sönnunarkröfur andspænis sönnunarreglum laga nr. 88/2008 og réttindum sakborninga samkvæmt stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu.
6. Að virtum gögnum málsins verður ekki séð að það lúti að atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu eða mjög mikilvægt sé af öðrum ástæðum að fá úrlausn Hæstaréttar um þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Þá eru ekki efni til að beita heimild 3. málsliðar 4. mgr. sömu lagagreinar. Niðurstaða Landsréttar um sakfellingu byggir jafnframt að verulegu leyti á mati á sönnunargildi munnlegs framburðar en það mat verður ekki endurskoðað fyrir Hæstarétti, sbr. 5. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Beiðninni er því hafnað.