Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-127

Mánudagurinn 21. september 2026

A (sjálfur)

gegn

íslenska ríkinu (enginn)

Lykilorð

Kæruleyfi. Flýtimeðferð. Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Með beiðni 10. september 2026 leitar A leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að kæra úrskurð Landsréttar 9. sama mánaðar í máli nr. 302/2026: A gegn íslenska ríkinu. Gagnaðili hefur ekki látið málið til sín taka.

3. Með úrskurði héraðsdóms var hafnað beiðni leyfisbeiðanda um að fyrirhugað dómsmál hans á hendur dómsmálaráðuneytinu vegna Fangelsismálastofnunar sætti flýtimeðferð samkvæmt XIX. kafla laga nr. 91/1991. Landsréttur taldi skilyrði flýtimeðferðar samkvæmt 1. mgr. 123. gr. laganna um að brýn þörf væri á skjótri úrlausn dómstóla ekki fyrir hendi og staðfesti niðurstöðu héraðsdóms. Í þeim efnum var vísað til þess að dómkrafa leyfisbeiðanda lyti að viðurkenningu á skaðabótaskyldu vegna löngu liðinna atvika og að hann hefði ekki sýnt fram á að hann yrði fyrir réttarmissi eða réttarspjöllum af því að bíða úrlausnar dómstóla eftir almennri málsmeðferð laga nr. 91/1991.

4. Leyfisbeiðandi byggir á því að Landsréttur hafi í engu vikið að seinna skilyrði 1. mgr. 123. gr. laga nr. 91/1991 um að málið hafi almenna þýðingu þrátt fyrir ítarlegan rökstuðning leyfisbeiðanda þar að lútandi. Málið varði stofnun og starfsmenn hennar sem hafi í skjóli valds beitt leyfisbeiðanda handahófskenndu ofbeldi. Málið hljóti því að varða almannahagsmuni. Einnig verður að skilja beiðnina þannig að leyfisbeiðandi telji úrskurð Landsréttar bersýnilega rangan.

5. Að virtum gögnum málsins verður ekki talið að úrlausn um kæruefnið varði mikilsverða almannahagsmuni, geti haft fordæmisgildi eða grundvallarþýðingu fyrir meðferð málsins þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991. Þá eru ekki efni til að beita heimild 3. málsliðar sömu málsgreinar á grundvelli þess að úrskurður Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi eða efni. Beiðni um kæruleyfi er því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar