Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-92
Mánudagurinn 14. september 2026
Staðarfjall ehf. (Einar Þór Sverrisson lögmaður)
gegn
Litlalandi ehf. (Sigurður Jónsson lögmaður)
Lykilorð
Kæruleyfi. Aðfarargerð. Útburðargerð. Litis pendens áhrif. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Með beiðni 22. júní 2026 leitar Staðarfjall ehf. leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 5. mgr. 84. gr. laga nr. 90/1989 um aðför, til að kæra úrskurð Landsréttar 9. sama mánaðar í máli nr. 316/2026: Staðarfjall ehf. gegn Litlalandi ehf. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.
3. Í málinu krefst leyfisbeiðandi þess að gagnaðili verði með beinni aðfarargerð borinn út úr nánar tilgreindri fasteign, ásamt öllu sem honum tilheyrir, þar með talið leigutökum á hans vegum, og leyfisbeiðandi settur inn í óskoruð umráð eignarinnar, sbr. 1. mgr. 78. gr. laga nr. 90/1989. Ágreiningur aðila lýtur að því hvort svokölluð litis pendens áhrif þingfestingar einkamáls, sem leyfisbeiðandi höfðaði einnig gegn gagnaðila, þar sem hann krefst dóms meðal annars um skyldu gagnaðila til að afhenda sömu fasteign að viðlögðum dagsektum, valdi því að hafna beri kröfu hans um beina aðför.
4. Með úrskurði héraðsdóms var kröfu leyfisbeiðanda hafnað á þeim grundvelli að hann gerði í reynd efnislega sömu kröfu í fyrirliggjandi aðfararmáli og fyrrgreindu einkamáli. Í ljósi þessa og með gagnályktun frá 79. gr. laga nr. 90/1989 hefði þingfesting einkamálsins litis pendens áhrif í skilningi laga nr. 91/1991 hvað kröfu um afhendingu eignarinnar snerti. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms. Í þeim efnum var vísað til þess að ekki hefði áhrif að einkamálið hefði verið höfðað eftir að beiðni um beina aðför var móttekin í héraðsdómi enda hefði einkamálið verið þingfest áður en aðfararbeiðnin var tekin fyrir á dómþingi. Þá taldi rétturinn yfirlýsingu leyfisbeiðanda í stefnu þess efnis að hann myndi falla frá kröfu um afhendingu fasteignarinnar yrði fallist á kröfu hans um beina aðför engin áhrif geta haft við úrlausn málsins.
5. Leyfisbeiðandi byggir á því að niðurstaða Landsréttar sé bersýnilega röng að efni til. Forsendur Landsréttar um skýringu á 4. mgr. 94. gr. laga nr. 91/1991 séu rangar enda sé ekki rétt að miða við hvenær aðfararmál sé tekið fyrir á dómþingi heldur við það tímamark er aðfararbeiðni berst héraðsdómi. Aðfararbeiðni í málinu hafi borist héraðsdómi 2. desember 2025 en einkamálið höfðað með birtingu stefnu 4. sama mánaðar. Þegar af þessari ástæðu komi ekki til álita að synja um aðför með vísan til einkamálsins. Ákvæði 4. mgr. 94. gr. laga nr. 91/1991 um litis pendens áhrif geti auk þess ekki átt við um kröfu í aðfararmáli. Þá telur leyfisbeiðandi úrlausn um kæruefnið hafa ríkt fordæmisgildi sem og grundvallarþýðingu fyrir meðferð málsins. Loks varði það leyfisbeiðanda miklu að fá umráð þeirrar fasteignar sem um ræðir.
6. Að virtum gögnum málsins verður ekki talið að úrlausn um kæruefnið geti haft fordæmisgildi eða grundvallarþýðingu fyrir meðferð málsins þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991. Þá eru ekki efni til að beita heimild 3. málsliðar sömu málsgreinar á grundvelli þess að úrskurður Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni. Beiðni um kæruleyfi er því hafnað.