Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-125
Fimmtudagurinn 1. október 2026
Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari)
gegn
Bartosz Milbrandt (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður)
Lykilorð
Áfrýjunarleyfi. Kynferðisbrot. Nauðgun. Brot í nánu sambandi. Sönnun. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Með beiðni 5. ágúst 2026 leitar Bartosz Milbrandt leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 18. júní sama ár í máli nr. 374/2025: Ákæruvaldið gegn Bartosz Milbrandt. Leyfisbeiðanda var birtur dómurinn 9. júlí sama ár. Ákæruvaldið leggst gegn beiðninni.
3. Leyfisbeiðandi var ákærður fyrir nauðgun og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa 26. nóvember 2021 á þáverandi heimili sínu og þáverandi sambýliskonu, með ofbeldi og ólögmætri nauðung og án samþykkis haft samræði eða önnur kynferðismök við hana á sérstaklega sársaukafullan og meiðandi hátt með þeim hætti og afleiðingum sem nánar er lýst í ákæru. Háttsemi leyfisbeiðanda var í ákæru heimfærð til 1. mgr. 194. gr. og 1., sbr. 2. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
4. Með héraðsdómi var ákærði sakfelldur samkvæmt ákæru og gert að sæta fangelsi í þrjú ár. Þá var honum gert að greiða brotaþola 2.500.000 krónur í miskabætur. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms að þessu leyti og vísaði einkum til þess að ákæruvaldinu hefði tekist að sanna, gegn neitun leyfisbeiðanda, með trúverðugum framburði brotaþola og því sem honum var til stuðnings, svo ekki yrði vefengt með skynsamlegum rökum, sbr. 1. og 2. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008, að leyfisbeiðandi hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum hefði verið gefin að sök í ákæru. Einn dómari skilaði sératkvæði og vildi sýkna leyfisbeiðanda af refsikröfu ákæruvaldsins og vísa einkaréttarkröfu brotaþola frá héraðsdómi.
5. Leyfisbeiðandi byggir á því dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni og að sönnunarmat dómsins hafi verið haldið augljósum annmörkum og í andstöðu við dómafordæmi um kynferðisbrot. Þá er á því byggt að úrslit málsins hafi verulega almenna þýðingu um sönnunarmat í kynferðisbrotamálum. Loks varði málið mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda enda hafi hann verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar og greiðslu miskabóta.
6. Að virtum gögnum málsins verður ekki séð að það lúti að atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu eða mjög mikilvægt sé af öðrum ástæðum að fá úrlausn Hæstaréttar um þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Þá eru ekki efni til að beita heimild 3. málsliðar 4. mgr. sömu lagagreinar. Niðurstaða Landsréttar um sakfellingu byggir jafnframt að verulegu leyti á mati á sönnunargildi munnlegs framburðar en það mat verður ekki endurskoðað fyrir Hæstarétti, sbr. 5. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Beiðninni er því hafnað.