Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

Mál nr. 2020-43

Föstudagurinn 14. febrúar 2020

A (Þorbjörg I. Jónsdóttir lögmaður)

gegn

B (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)

Lykilorð

Dómkvaðning matsmanns. Hafnað. Kæruheimild. Kæruleyfi. Yfirmat

Ákvörðun Hæstaréttar

Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson.

Með beiðni 28. janúar 2020 leitar A eftir leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar 14. janúar sama ár í málinu nr. 857/2019: A gegn B. Vísar leyfisbeiðandi í því sambandi til 168. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. B leggst gegn beiðninni.

Mál þetta lýtur að kröfu leyfisbeiðanda um dómkvaðningu yfirmatsmanna samkvæmt 64. gr. laga nr. 91/1991 til að endurmeta niðurstöðu dómkvadds matsmanns. Með framangreindum úrskurði Landsréttur var staðfestur úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu leyfisbeiðanda um dómkvaðningu yfirmatsmanna. Leitar leyfisbeiðandi kæruleyfis til að fá þeirri niðurstöðu hnekkt.

Samkvæmt 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 er unnt að leita leyfis Hæstaréttar til að kæra úrskurði Landsréttar þegar svo er fyrir mælt í öðrum lögum. Hvorki er í lögum nr. 91/1991 né öðrum lögum kveðið á um heimild til að sækja um leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar um það efni sem hér um ræðir. Þegar af þessari ástæðu er beiðni um kæruleyfi hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar