Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-118

Miðvikudagurinn 21. október 2026

A (Arnar Þór Jónsson lögmaður)

gegn

íslenska ríkinu (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Sóttvarnalög. Sóttvarnaraðgerðir. Stjórnarskrá. Stjórnvaldsákvörðun. Samþykkt

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ásgerður Ragnarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Með beiðni 21. júlí 2026 leitar A leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 25. júní sama ár í máli nr. 164/2024: A gegn íslenska ríkinu. Gagnaðili leggst ekki gegn beiðninni.

3. Mál þetta varðar miskabótakröfu leyfisbeiðanda vegna stjórnvaldsákvörðunar sóttvarnalæknis 24. nóvember 2021 þar sem honum var gert að sæta sóttkví í 14 daga frá komu hans til landsins. Kröfu sína reisir hann á 5. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar og 4. mgr. 15. gr. b þágildandi sóttvarnalaga nr. 19/1997.

4. Með héraðsdómi var gagnaðili sýknaður af kröfu leyfisbeiðanda og staðfesti Landsréttur þá niðurstöðu. Í dómi réttarins kom fram að við komu til landsins hefði leyfisbeiðandi ekki framvísað neinu þeirra vottorða sem tilgreind væru í reglugerð nr. 1240/2021 um sóttkví og einangrun og sóttvarnaráðstafanir á landamærum Íslands vegna COVID-19 faraldursins, en meðal þeirra væri viðurkennt vottorð um bólusetningu. Þá rakti Landsréttur að leyfisbeiðandi hefði ekki farið eftir fyrirmælum reglugerðarinnar um að fara í PCR-sýnatöku við komu til landsins, en að fenginni neikvæðri niðurstöðu úr slíkri sýnatöku fimm dögum eftir komuna til landsins hefði hann verið laus úr sóttkví. Leyfisbeiðandi hefði verið meðvitaður um að í almennum fyrirmælum sóttvarnalæknis fælist að hann yrði af þessum sökum að halda sóttkví í 14 daga frá komu til landsins. Komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að reglugerðin hefði í tilviki leyfisbeiðanda haft viðhlítandi stoð í sóttvarnalögum. Þá yrði við úrlausn málsins að líta til þess að skerðing á réttindum leyfisbeiðanda í formi sóttkvíar væri gerð til verndar lífi og heilsu fólks sem nyti verndar stjórnarskrár og alþjóðlegra sáttmála sem íslenska ríkið væri bundið af. Yrði því að játa löggjafanum og stjórnvöldum nokkurt svigrúm við mat á nauðsyn aðgerða. Niðurstaða héraðsdóms var því staðfest.

5. Leyfisbeiðandi byggir á því að sakarefnið hafi verulegt almennt gildi. Málið varði lögmætisreglu, skýrleika lagaheimilda og mörk reglugerðarvalds þegar stjórnvald grípi til ráðstafana sem feli í sér frelsisskerðingu. Þá varði málið rétt einstaklings til leiðbeininga og raunhæfs aðgangs að dómstólum þegar honum er gert að sæta sóttkví. Byggir leyfisbeiðandi á því að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur og gangi gegn stjórnarskrá og almennum lögum. Loks varði úrslit málsins sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda.

6. Að virtum gögnum málsins verður litið svo á að dómur í því kunni að hafa verulegt almennt gildi þannig að fullnægt sé skilyrðum 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því samþykkt.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar