Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

Mál nr. 2022-12

Þriðjudagurinn 1. mars 2022

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari)

gegn

X (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Hafnað. Kynferðisbrot. Nauðgun

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen og Karl Axelsson.

2. Með beiðni 16. desember 2021, sem barst réttinum 28. janúar 2022, leitar X leyfis Hæstaréttar til að áfrýja dómi Landsréttar 5. nóvember 2021 í máli nr. 100/2021: Ákæruvaldið gegn X á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Leyfisbeiðanda var birtur dómurinn 19. nóvember 2021. Ákæruvaldið leggst gegn beiðninni.

3. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu leyfisbeiðanda fyrir nauðgun samkvæmt 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 gegn fjórum konum sem sóttu hjá honum meðferð vegna ýmissa stoðkerfisvandamála. Refsing hans var ákveðin fangelsi í sex ár auk þess sem ákvæði í dómi héraðsdóms um miskabætur til brotaþola voru staðfest.

4. Leyfisbeiðandi tekur fram að með áfrýjun vilji hann ná fram ómerkingu á héraðsdómi og dómi Landsréttar og heimvísun málsins, sbr. d-lið 1. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008, en til vara endurskoðun á ákvörðun viðurlaga, sbr. a-lið 1. mgr. sömu greinar. Því til stuðnings vísar hann meðal annars til þess að í héraðsdómi og hinum áfrýjaða dómi hafi við mat á sönnunargildi munnlegs framburðar ekki verið gætt að reglunni um frjálst sönnunarmat dómara samkvæmt 109. gr. laga nr. 88/2008. Þá séu ekki til staðar nein sýnileg sönnunargögn, ef frá er talin matsgerð sem geti ekki haft sönnunargildi. Loks telur hann að refsing hafi verið ákveðin til muna of þung og ekki í neinu samræmi við dómaframkvæmd.

5. Að virtum gögnum málsins verður ekki séð að það lúti að atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu eða að mjög mikilvægt sé af öðrum ástæðum að fá úrlausn Hæstaréttar þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Þá eru ekki efni til að beita heimild 3. málsliðar 4. mgr. sömu lagagreinar í málinu. Niðurstaða Landsréttar um sakfellingu byggir jafnframt að verulegu leyti á mati á sönnunargildi munnlegs framburðar en það mat verður ekki endurskoðað fyrir Hæstarétti, sbr. 5. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Beiðninni er því hafnað.

https://landsrettur.is/domar-og-urskurdir/domur-urskurdur/?id=4e60712e-5d20-4c3d-81f1-c7a7004150f4&verdictid=574ce0a3-5f07-4e76-96bb-8f7108806cfd

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar