Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-94
Fimmtudagurinn 1. október 2026
VÍS tryggingar hf. (Heiðar Örn Stefánsson lögmaður)
gegn
A (Ólafur Örn Svansson lögmaður)
Lykilorð
Áfrýjunarleyfi. Vinnuslys. Líkamstjón. Vátrygging. Ábyrgðartrygging. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Með beiðni 23. júní 2026 leita VÍS tryggingar hf. leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 26. maí sama ár í máli nr. 399/2025: A gegn VÍS tryggingum hf. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.
3. Ágreining aðila má rekja til vinnuslyss sem gagnaðili varð fyrir 4. nóvember 2021 við brúarsmíði á Sólheimasandi. Tildrög slyssins voru að við brúarsmíðina var notaður steypudælukrani sem áfastur var vörubifreið í eigu B ehf. og stjórnað var af starfsmanni félagsins. Kraninn var í útréttri stöðu þegar hluti hans féll skyndilega ofan á gagnaðila með þeim afleiðingum að hann klemmdist milli bómunnar og steypumótsins og hlaut líkamstjón af. Slysið var tilkynnt til lögreglu sem kom á vettvang og til Vinnueftirlitsins sem skoðaði tækið átta dögum eftir slysið. Í skýrslu Vinnueftirlitsins kom fram að öll notkun steypudælunnar væri bönnuð tímabundið og gera skyldi rannsókn á henni í samráði við framleiðanda. Slík rannsókn fór ekki fram og var tækið selt úr landi án þess að orsök bilunarinnar væri rannsökuð nánar.
4. Gagnaðili höfðaði mál gegn leyfisbeiðanda og krafðist viðurkenningar á bótaskyldu úr ábyrgðartryggingu B ehf. Til vara krafðist hann viðurkenningar á bótaskyldu úr lögboðinni ökutækjatryggingu vörubifreiðarinnar. Með héraðsdómi var leyfisbeiðandi sýknaður af kröfum gagnaðila. Landsréttur komst að gagnstæðri niðurstöðu. Rétturinn vísaði til þess að þar sem vitneskja hefði legið fyrir um að kraninn hefði gefið sig á sama stað nokkrum árum fyrr yrði að telja að full þörf hefði verið á rannsókn hans og aðstæðum á slysstað. Slík rannsókn hefði getað upplýst um atvik og orsök slyssins, þar á meðal hvort það væri að rekja til vanbúnaðar kranans. Þar sem kraninn hefði verið fjarlægður af slysstað og seldur úr landi skömmu síðar hefði gagnaðila verið ókleift að sýna fram á hver orsök slyssins hefði verið. Að teknu tilliti til þessa og aðstöðumunar aðila yrði að telja að það hefði staðið B ehf. nær að leitast við að upplýsa betur um atvik að slysinu og ástand kranans. Þyrfti leyfisbeiðandi því að bera hallann af sönnunarskorti í málinu um þau atriði sem gætu haft áhrif á sakarmat og óljós atriði um orsök slyssins. Leyfisbeiðanda hefði ekki tekist að sanna að orsök slyssins væri ekki að rekja til saknæmrar háttsemi B ehf. eða starfsmanna hans. Krafa gagnaðila um viðurkenningu á bótaskyldu úr ábyrgðartryggingu hjá leyfisbeiðanda var því tekin til greina.
5. Leyfisbeiðandi byggir á því að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi. Telur hann að dómur Landsréttar móti fordæmi um þýðingu viðsnúinnar sönnunarbyrði í vinnuslysamálum. Dómurinn sé bersýnilega rangur enda bendi rökstuðningur Landsréttar til þess að sakarlíkindareglu hafi verið beitt sem sé í andstöðu við almenna þróun í skaðabótarétti. Fræðimenn og dómstólar hafi til þessa miðað við að viðsnúin sönnunarbyrði sé ekki sjálfstæður bótagrundvöllur heldur sönnunarregla. Frá því hafi verið vikið með dómi Landsréttar. Þá byggir hann á því að málsmeðferð fyrir héraðsdómi og Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant þar sem þörf hafi verið á sérfróðum meðdómsmönnum.
6. Að virtum gögnum málsins verður hvorki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.