Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-114

Mánudagurinn 21. september 2026

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari)

gegn

X (Almar Þ. Möller lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Kynferðisbrot. Nauðgun. Sönnun. Sönnunarmat. Samþykkt

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Með beiðni 22. júní 2026 leitar X leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 26. maí sama ár í máli nr. 346/2025: Ákæruvaldið gegn X. Ákæruvaldið leggst gegn beiðninni.

3. Leyfisbeiðandi var ákærður fyrir kynferðisbrot og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa á árunum 2003 til 2007, með ofbeldi og ólögmætri nauðung, ítrekað brotið kynferðislega gegn systur sinni á heimili þeirra, í sumarbústaðarferðum og erlendis. Í ákæru voru brotin talin varða við 1. mgr. 194. gr., 1. mgr. 202. gr. og 1., sbr. 2. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

4. Með héraðsdómi var leyfisbeiðandi sýknaður af kröfum ákæruvaldsins. Gegn eindreginni neitun leyfisbeiðanda var ekki talið sannað að hann hefði gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæru greindi. Með dómi Landsréttar var leyfisbeiðandi að mestu leyti sakfelldur fyrir þá háttsemi sem greindi í ákæru og brot hans talin varða við 1. mgr. 194. gr. og 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga. Taldi Landsréttur ákæruvaldinu hafa tekist að sanna með trúverðugum framburði brotaþola og því sem honum var til stuðnings, svo ekki yrði vefengt með skynsamlegum rökum, að ákærði hefði brotið kynferðislega gegn brotaþola á tímabili ákæru. Refsing hans var ákveðin fangelsi í fjögur ár en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

5. Leyfisbeiðandi byggir á því að öll skilyrði 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 fyrir veitingu áfrýjunarleyfis séu fyrir hendi. Meðal þess sem hann vísar til er að sönnunarmat Landsréttar byggi á bersýnilega röngum forsendum og nálgun réttarins á sönnunarmati feli í sér rökfræðilegan og aðferðafræðilegan annmarka sem brjóti í bága við meginreglur sakamálaréttarfars. Ekki sé unnt að reisa sakfellingu leyfisbeiðanda á framburði brotaþola sem eigi sér hvorki stoð í málsgögnum né framburði vitna. Mat réttarins á framburði brotaþola hafi þannig verið rangt. Mat Landsréttar á framburði leyfisbeiðanda hafi jafnframt verið rangt auk þess sem rétturinn hafi dregið ályktanir af hljóðupptöku sem ekki fái staðist. Þá sé nauðsynlegt að fá úrlausn Hæstaréttar um sönnunarkröfur þar sem langur tími sé liðinn frá atvikum eins og við eigi í fyrirliggjandi máli. Loks byggir leyfisbeiðandi á því að hann hafi verið sýknaður af ákæruefni í héraði en sakfelldur fyrir Landsrétti.

6. Samkvæmt 4. málslið 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 skal verða við ósk ákærðs manns, sem sýknaður er af ákæruefni í héraðsdómi en sakfelldur fyrir Landsrétti, um leyfi til áfrýjunar nema Hæstiréttur telji ljóst að áfrýjun muni ekki verða til þess að breyta dómi Landsréttar. Þar sem slíku verður ekki slegið föstu í tilviki leyfisbeiðanda verður beiðnin samþykkt.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar