Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-108
Miðvikudagurinn 14. október 2026
A (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)
gegn
B (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður)
Lykilorð
Áfrýjunarleyfi. Fasteignakaup. Kaupsamningur. Viðurkenningarkrafa. Kröfugerð. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ásgerður Ragnarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Með beiðni 7. júlí 2026 leitar A leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 11. júní sama ár í máli nr. 219/2025: A gegn B. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.
3. Leyfisbeiðandi og gagnaðili, sem eru mæðgin, festu kaup á fasteign árið 2011. Eignarhlutur leyfisbeiðanda samkvæmt kaupsamningi var 60% og gagnaðila 40% en óumdeilt er að fjárframlag gagnaðila, sem býr við þroskaskerðingu, hafi numið 86,9% af kaupverði eignarinnar. Gagnaðili höfðaði mál þetta og krafðist þess að viðurkennt yrði með dómi að eignarhlutur hans í fasteigninni væri í samræmi við fjárframlag hans við kaupin.
4. Með héraðsdómi var fallist á viðurkenningarkröfu gagnaðila, auk fjárkröfu sem var ótengd fasteignakaupunum. Vísaði héraðsdómur til þess að samkvæmt matsgerð geð- og embættislæknis og framburði hans fyrir dómi væri ljóst að gagnaðili hefði ekki haft skilning á því við kaupin hvert samhengi væri milli greiðslna af hans hálfu og þeirra eignarhlutfalla sem ákveðin voru. Skilyrði 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga voru talin uppfyllt. Var því vikið til hliðar ákvæðum kaupsamningsins um eignarhlutdeild þeirra í fasteigninni. Fyrir Landsrétti var einungis deilt um viðurkenningarkröfu gagnaðila. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um þá kröfu og nefndi jafnframt að af þeirri niðurstöðu leiddi að eignarhlutdeild leyfisbeiðanda í fasteigninni yrði 13,1%.
5. Leyfisbeiðandi byggir á því að skilyrði 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 séu uppfyllt í málinu. Í fyrsta lagi sé dómur Landsréttar bersýnilega rangur að formi og efni. Landsréttur hafi farið út fyrir dómkröfur aðila og kveðið á um ný eignarhlutföll þeirra. Þá hafi Landsréttur beitt 36. gr. laga nr. 7/1936 án þess að tilgreina að með dóminum hafi kaupsamningnum verið vikið til hliðar og breytt. Standi kaupsamningur og afsal því óbreytt þrátt fyrir dóm Landsréttar, sem sé ekki aðfararhæfur, enda ekki unnt að líta svo á að hann sé ný eignarheimild. Í öðru lagi hafi málatilbúnaður gagnaðila falið í sér lögspurningu og því borið að vísa málinu frá héraðsdómi samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991. Loks byggir leyfisbeiðandi á því að málið lúti að sérstaklega mikilvægum hagsmunum sínum.
6. Að virtum gögnum málsins verður ekki litið svo á að úrslit þess varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að málsmeðferð hafi verið stórlega ábótavant eða að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi eða efni, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.