Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

Mál nr. 2025-59

Fimmtudagurinn 22. maí 2025

A (Steingrímur Þormóðsson lögmaður)

gegn

TM tryggingum hf. (Þórir Júlíusson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Hafnað. Líkamstjón. Skaðabótaábyrgð. Skaðabætur. Stjórnarskrá. Uppgjör

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen og Skúli Magnússon.

2. Með beiðni 2. apríl 2025 leitar A leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 6. mars sama ár í máli nr. 878/2023: A gegn TM tryggingum hf. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.

3. Í málinu er deilt um hvort ákvæði 4. málsliðar 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 um að draga skuli frá skaðabótum vegna líkamstjóns 40% af reiknuðu eingreiðsluverðmæti örorkulífeyris frá lífeyrissjóði standist ákvæði 72. og 65. gr. stjórnarskrárinnar.

4. Með héraðsdómi var gagnaðili sýknaður af kröfu leyfisbeiðanda um greiðslu á 1.310.665 krónum með vöxtum sem var sú fjárhæð sem gagnaðili hafði dregið frá uppgjöri bóta til hans á grundvelli 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga og byggði á útreikningum tryggingastærðfræðings. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms. Í dóminum var ekki fallist á að frádráttur frá bótum samkvæmt 4. málslið 4. mgr. 5. gr. laganna væri andstæður nefndum ákvæðum stjórnarskrár eða stjórnskipulegri meðalhófsreglu. Þá yrði að virtum útreikningum tryggingastærðfræðings og skýringum talið að gagnaðili hefði sýnt nægilega fram á réttmæti þeirrar fjárhæðar sem um ræddi.

5. Leyfisbeiðandi byggir á því að málsmeðferð í héraði hafi verið stórlega ábótavant og ekki tekið tillit til þess við úrlausn Landsréttar. Hefði dómari átt að hafa sér til fulltingis sérfróðan meðdómanda enda varði málið umdeilda útreikninga tryggingastærðfræðings sem gagnaðili aflaði einhliða og byggði frádráttarkröfu sína á. Leyfisbeiðandi byggir jafnframt á því að sú niðurstaða Landsréttar að ómerkja ekki dóm héraðsdóms sé bersýnilega röng og málið varði því rétt leyfisbeiðanda til réttlátrar málsmeðferðar.

6. Að virtum gögnum málsins verður hvorki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi eða efni, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.

https://landsrettur.is/domar-og-urskurdir/domur-urskurdur/?id=5a0ead77-80e3-4ed2-978e-e625740c193a&verdictid=3e4426d3-31d8-4532-829e-fce099b6c121

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar