Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-110

Mánudagurinn 21. september 2026

Daði Einarsson, Jens Guðbjörnsson, Daði Guðbjörnsson, Guðbjörn Guðbjörnsson, Gunnar Guðbjörnsson, Valdimar Makaira Valdimarsson, Jóhannes Wiremu Valdimarsson, Stefán Wirihana Valdimarsson, Sólrún H. Skúladóttir, Guðný Kúld, Kristín Aðalsteinsdóttir, Iða Brá Skúladóttir og Þorsteinn Guðbrandsson (Gísli Guðni Hall lögmaður)

gegn

Dön ehf. (Friðbjörn Garðarsson lögmaður) og Dönustöðum ehf., Jóhönnu Lilju Einarsdóttur, Jónínu Einarsdóttur, Sigríði Lilju Skúladóttur, Skúla Einarssyni, Sólrúnu Svövu Skúladóttur, Svanborgu Þ. Einarsdóttur og Valdísi Einarsdóttur (enginn)

Lykilorð

Kæruleyfi. Útivist í héraði. Lögmæt forföll. Ómerking héraðsdóms. Heimvísun. Samþykkt

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Með beiðni 9. júlí 2026 leita Daði Einarsson, Jens Guðbjörnsson, Daði Guðbjörnsson, Guðbjörn Guðbjörnsson, Gunnar Guðbjörnsson, Valdimar Makaira Valdimarsson, Jóhannes Wiremu Valdimarsson, Stefán Wirihana Valdimarsson, Sólrún H. Skúladóttir, Guðný Kúld, Kristín Aðalsteinsdóttir, Iða Brá Skúladóttir og Þorsteinn Guðbrandsson leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að kæra úrskurð Landsréttar 25. júní sama ár í máli nr. 566/2025: Dön ehf. gegn Daða Einarssyni, Jens Guðbjörnssyni, Daða Guðbjörnssyni, Guðbirni Guðbjörnssyni, Gunnari Guðbjörnssyni, Valdimar Makaira Valdimarssyni, Jóhannesi Wiremu Valdimarssyni, Stefáni Wirihana Valdimarssyni, Sólrúnu H. Skúladóttur, Guðnýju Kúld, Kristínu Aðalsteinsdóttur, Iðu Brá Skúladóttur, Þorsteini Guðbrandssyni, Dönustöðum ehf., Jóhönnu Lilju Einarsdóttur, Jónínu Einarsdóttur, Sigríði Lilju Skúladóttur, Skúla Einarssyni, Sólrúnu Svövu Skúladóttur, Svanborgu Þ. Einarsdóttur og Valdísi Einarsdóttur. Gagnaðili Dön ehf. tekur undir málsástæður og lagarök leyfisbeiðanda en aðrir gagnaðilar láta sig málið ekki varða.

3. Ágreiningur aðila um efnishlið máls lýtur að kröfum gagnaðila Dön ehf. um viðurkenningu á landamerkjum Dönustaða og Lambeyra í Dalabyggð auk viðurkenningar á eignarrétti að landi og landsréttindum innan túngirðingar fyrrgreindu jarðarinnar svo og eignarhlutdeildar í henni.

4. Með úrskurði dómstjóra Héraðsdóms Reykjaness 3. júní 2024 viku allir dómarar við réttinn sæti í málinu. Málið var næst tekið fyrir 31. október 2024 af þeim héraðsdómara sem falin hafði verið meðferð málsins og flutt um frávísunarkröfu leyfisbeiðenda. Málið var tekið fyrir 22. nóvember 2024 og frávísunarkröfunni hafnað. Í þingbók kemur fram að aðilar hefðu boðað forföll og ekki gert athugasemd við að þinghaldið færi fram á aðsetri Héraðsdóms Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 30. júní 2025 voru aðrir aðilar málsins sýknaðir af kröfum Dön ehf.

5. Dómi Héraðsdóms Reykjaness var áfrýjað til Landsréttar sem ómerkti meðferð málsins frá fyrrgreindu þinghaldi í héraði 22. nóvember 2024. Í úrskurði Landsréttar kom fram að þar sem þingsókn hefði fallið niður af hálfu gagnaðila Dön ehf. hefði héraðsdómara borið að fara svo að sem segir í b-lið 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991 og fella málið niður nema um lögmæt forföll hafi verið að ræða í skilningi 2. mgr., sbr. 1. mgr. 97. gr. laga nr. 91/1991. Í þingbók hefði ekkert komið fram um að svo hefði verið og heldur ekki í svörum lögmanna til héraðsdóms. Ef sú hefði verið raunin hefði dómara borið að fresta málinu og boða til nýs þinghalds, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Héraðsdómari hefði hvorugt gert og taldi Landsréttur að hvorki ákvæði 3. mgr. 97. gr. laga nr. 91/1991 né b-liðar 1. mgr. 105. gr. sömu laga yrðu skilin svo að þau ættu ekki við um þinghald, sem boðað hefði verið til í því skyni að kveða upp úrskurð um atriði varðandi rekstur máls. Landsréttur taldi því óhjákvæmilegt að ómerkja meðferð málsins frá og með þinghaldinu 22. nóvember 2024 og leggja fyrir héraðsdóm að taka það til meðferðar. Þá kom fram í úrskurðinum að ekki fengi breytt þessu mati að lögmenn hefðu samþykkt að úrskurður héraðsdóms yrði kveðinn upp á aðsetri Héraðsdóms Norðurlands vestra á Sauðárkróki enda hefði þeim verið fært að mæta til þinghaldsins með fjarfundarbúnaði, sbr. 4. mgr. 8. gr. laga nr. 91/1991.

6. Leyfisbeiðendur vísa til 2. málsliðar 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 og byggja á því að úrskurður Landsréttar hafi grundvallarþýðingu fyrir meðferð málsins, jafnframt sem ástæða sé til að ætla að dómsathöfnin sé bersýnilega röng, sbr. 3. málslið sömu greinar.

7. Að virtum gögnum málsins verður talið að fullnægt sé skilyrðum 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 fyrir veitingu kæruleyfis. Beiðni um kæruleyfi er því samþykkt.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar