Hæstiréttur Íslands
Mál nr. 2026-63
Þriðjudagurinn 12. maí 2026
Íslenska ríkið (Fanney Rós Þorsteinsdóttir ríkislögmaður)
gegn
Solveigu Jóhannsdóttur (Gísli Guðni Hall lögmaður)
Lykilorð
Kæruleyfi. Hæfi dómara. Vanhæfi. Lífeyrir. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari Skúli Magnússon hæstaréttardómari og Árni Kolbeinsson og Helgi I. Jónsson fyrrverandi hæstaréttardómarar.
2. Með beiðni 30. apríl 2026 leitar íslenska ríkið leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að kæra úrskurð Landsréttar 17. sama mánaðar í máli nr. 841/2025: íslenska ríkið gegn Solveigu Jóhannsdóttur. Gagnaðili leggur í mat réttarins hvort orðið skuli við beiðninni.
3. Þessi þáttur málsins lýtur að því hvort héraðsdómari skuli víkja sæti í máli þar sem fyrir hendi séu aðstæður til þess fallnar að draga óhlutdrægni hans með réttu í efa, sbr. g-lið 5. gr. laga nr. 91/1991. Efniságreiningur aðila lýtur að lögmæti skerðingar á lífeyrisréttindum sjóðfélaga í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins sem kynntar voru og komu til framkvæmda í tveimur skrefum á árinu 2023. Héraðsdómarinn hefur verið sjóðfélagi í A-deild sjóðsins allt frá árinu 2000.
4. Með úrskurði Landsréttar var úrskurður héraðsdóms um að héraðsdómari í málinu viki sæti staðfestur með vísan til forsendna hans en að viðbættum frekari röksemdum. Landsréttur rakti að héraðsdómari, sem sjóðfélagi í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, ætti það sameiginlegt með nokkuð afmörkuðum hópi fólks að hafa fjárhagslegra hagsmuna að gæta af úrlausn málsins. Þá yrði að telja að þeir hagsmunir væri umtalsverðir og sérstakir, en í því tilliti mætti líta til þess að málið sneri efnislega að því hvort heimilt hefði verið samkvæmt 72. gr. stjórnarskrár að gera þá grundvallarbreytingu á lífeyrisréttindum ríkisstarfsmanna að afnema tryggingu launagreiðanda á lögbundnum réttindum sjóðfélaga, eins og áður leiddi af II. kafla laga nr. 1/1997 um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, sbr. einkum þágildandi 4. mgr. 13. gr. laganna. Sameiginlegir hagsmunir félaga í A-deild sjóðsins af úrlausn málsins væru því mun víðtækari en sú fjárkrafa sem gagnaðili tefldi fram í stefnu gæfi til kynna.
5. Leyfisbeiðandi byggir á því að kæruefnið kunni að hafa ríkt fordæmisgildi. Hann telur mikilvægt að Hæstiréttur fjalli nánar um hæfi dómara á grundvelli g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 þegar jafn stór hópur hafi fjárhagslega hagsmuni af niðurstöðu máls og hér um ræði. Á sambærilega hagsmuni hafi reynt áður í máli sem lauk með dómi Hæstaréttar 30. apríl 2014 í máli nr. 266/2014. Úrskurður Landsréttar sé í andstöðu við það fordæmi. Þannig megi ætla að langflestir núverandi starfsmenn ríkisins, þeirra á meðal nær allir starfandi héraðsdómarar, séu sjóðfélagar í A-deild lífeyrissjóðsins og hafi hagsmuni af málinu. Landsréttur virðist engu að síður byggja ranglega á því að hagsmunir sem tugir þúsunda eigi séu það sértækir að þeir valdi vanhæfi héraðsdómara. Leyfisbeiðandi byggir einnig á því að kæruefnið hafi grundvallarþýðingu fyrir meðferð málsins. Ljóst sé að allir embættisdómarar séu meira eða minna vanhæfir og þurfi því að finna dómara, hvort heldur í héraði eða á áfrýjunarstigi, sem ekki séu eða hafi verið sjóðfélagar í A-deild lífeyrissjóðsins.
6. Að virtum gögnum málsins verður ekki talið að úrlausn um kæruefnið geti haft fordæmisgildi eða grundvallarþýðingu fyrir meðferð málsins þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991. Þá eru ekki efni til að beita heimild 3. málsliðar sömu málsgreinar á grundvelli þess að úrskurður Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni til. Beiðni um kæruleyfi er því hafnað.