Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-105

Mánudagurinn 5. október 2026

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari)

gegn

Lúkasi Geir Ingvarssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi Manndráp. Frelsissvipting. Rán. Fjárkúgun. Tilraun. Heimfærsla. Einkaréttarkrafa. Skaðabætur. Miskabætur. Missir framfæranda. Refsiákvörðun. Sönnun. Ásetningur. Samverknaður. Skilorðsrof. Sýkna að hluta. Matsgerð. Sakarkostnaður. Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Með beiðni 9. júní 2026 leitar Lúkas Geir Ingvarsson leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 13. maí sama ár í máli nr. 744/2025: Ákæruvaldið gegn Stefáni Blackburn, Lúkasi Geir Ingvarssyni, Matthíasi Birni Erlingssyni, Rakel Björk Heimisdóttur og X.

3. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu leyfisbeiðanda, Stefáns Blackburn og Matthíasar Björns Erlingssonar fyrir manndráp, frelsissviptingu og rán, samkvæmt I. lið ákæru 4. júní 2025, með því að hafa 11. mars sama ár svipt brotaþola lífi auk þess að hafa beitt hann margþættu og hrottafengnu líkamlegu ofbeldi 10. og 11. þess mánaðar í því skyni að ná af honum fjármunum. Háttsemin var heimfærð til 211. gr., 2. mgr. 226. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Leyfisbeiðandi og fyrrgreindur Matthías voru sýknaðir af tilraun til fjárkúgunar samkvæmt II. lið ákærunnar á báðum dómstigum. Refsing leyfisbeiðanda var ákveðin fangelsi í 16 ár en í héraði hafði honum verið gert að sæta fangelsi í 17 ár.

4. Leyfisbeiðandi kveður beiðni um áfrýjunarleyfi lúta að skýringu og beitingu réttarreglna og mati á sönnunargildi annarra gagna en munnlegs framburðar. Þá kunni röng beiting réttarreglna að leiða til ómerkingar dómsins og heimvísunar málsins. Enn fremur hafi Landsréttur litið fram hjá mikilvægum atriðum sem varði varnir hans. Auk þess geri leyfisbeiðandi verulegar athugasemdir við ákvörðun Landsréttar um þóknun verjanda. Þá séu skilyrði 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 uppfyllt þar sem úrslit málsins kunni að hafa verulega almenna þýðingu. Í því tilliti vísar leyfisbeiðandi til þess að málið hafi almenna þýðingu um mörk ásetnings og gáleysis og hvernig sanna beri huglæga afstöðu sakbornings þegar afleiðingar ofbeldis verði langt umfram upphafleg áform. Þá lúti málið að skilyrðum samverknaðar þegar framkvæmd brots fari úrskeiðis. Einnig telur leyfisbeiðandi að verulegir annmarkar hafi verið á meðferð málsins fyrir Landsrétti. Loks vísar hann til þess að annar þáttur málsins muni að öllum líkindum sæta endurskoðun Hæstaréttar þar sem meðákærða í málinu hafi verið sýknuð í héraði en sakfelld fyrir hlutdeild í frelsissviptingu með dómi Landsréttar. Ljóst sé að sakarefnin tvinnist saman og rétt að málið í heild fái endurskoðun fyrir Hæstarétti.

5. Ákæruvaldið telur að engir slíkir annmarkar hafi verið á aðferð Landsréttar við sönnunarmat í málinu að valdi ómerkingu þess hluta dómsins sem snýr að sakfellingu samkvæmt ákærulið I. Með hliðsjón af alvarleika háttseminnar og því að uppfyllt hafi verið skilyrði 79. gr. almennra hegningarlaga hafi ekki verið tilefni til að milda refsingu leyfisbeiðanda eins og Landsréttur hafi gert. Þó telji ákæruvaldið ekki að tilefni hafi verið til að leita áfrýjunarleyfis á þeim grundvelli einum.

6. Að virtum gögnum málsins verður hvorki séð að það lúti að atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu né að mjög mikilvægt sé af öðrum ástæðum að fá úrlausn Hæstaréttar um þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Þá eru ekki efni til að beita heimild 3. málsliðar 4. mgr. sömu lagagreinar í málinu. Beiðninni er því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar