Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-106
Mánudagurinn 5. október 2026
Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari)
gegn
Rakel Björk Heimisdóttur (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð
Áfrýjunarleyfi. Hlutdeild. Heimfærsla. Frelsissvipting. Rán. Fjárkúgun. Sýkna að hluta. Samþykkt
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Með beiðni leitar Rakel Björk Heimisdóttir leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 13. maí sama ár í máli nr. 744/2025: Ákæruvaldið gegn Stefáni Blackburn, Lúkasi Geir Ingvarssyni, Matthíasi Birni Erlingssyni, Rakel Björk Heimisdóttur og X.
3. Með IV. lið ákæru 4. júní 2025 var leyfisbeiðanda gefin að sök hlutdeild í frelsissviptingu og ráni samkvæmt ákærulið I, með því að hafa sett sig í samband við brotaþola og fengið hann til að yfirgefa heimili sitt og fara yfir í tiltekna bifreið, vitandi að til stæði að svipta hann frelsi og beita hann ofbeldi í því skyni að hafa af honum fjármuni með ólögmætum hætti. Háttsemin var talin varða við 2. mgr. 226. gr. og 252. gr., sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
4. Héraðsdómur sýknaði leyfisbeiðanda af öllum sakargiftum. Með dómi Landsréttar var hún sakfelld fyrir hlutdeild í frelsissviptingu brotaþola en sýknuð af hlutdeild í ráni. Leyfisbeiðanda var gert að sæta fangelsi í 6 mánuði en refsing bundin skilorði.
5. Leyfisbeiðandi vísar til þess að 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 bjóði að verða skuli við ósk um áfrýjun þegar ákærði hefur verið sýknaður af ákæruefni í héraðsdómi en sakfelldur fyrir Landsrétti. Þá byggir hún á því að niðurstaða Landsréttar hafi ekki byggst á mati á sönnunargildi munnlegs framburðar. Hún telur því almenn skilyrði fyrir veitingu áfrýjunarleyfis uppfyllt. Landsréttur hafi án nokkurs rökstuðnings beitt sönnunarreglum ranglega og heimfært háttsemina með röngum hætti til refsiákvæða. Leyfisbeiðandi hafi haft það eina hlutverk í atburðarásinni að gera það trúverðugt að brotaþoli væri að tala við ólögráða stúlku. Hún hafi ekki tekið annan þátt í undirbúningsathöfnum. Hún hafi gengist við að hafa ljáð rödd sína í þessu skyni til fjárkúgunar en brot hennar ekki verið í ákæru heimfært til 251. gr. hegningarlaga. Leyfisbeiðandi hafi ekki getað séð fyrir þá framvindu atvika sem orðið hafi. Þá hafi Landsréttur ekki fært fram sannfærandi rök til að hnekkja afdráttarlausri sýknu héraðsdóms. Í rökstuðningi fyrir sakfellingu sé ekki lýst efnisþáttum frelsissviptingar heldur aðeins fjárkúgunar en ekki hafi verið unnt að sakfella fyrir það brot á grundvelli ákærunnar. Loks vísar hún til þess að brýnt sé að bæta úr misfellum sem orðið hafi á meðferð málsins fyrir Landsrétti.
6. Ákæruvaldið telur niðurstöðu Landsréttar um sakfellingu leyfisbeiðanda rétta svo langt sem hún nái en telur að einnig hefði átt að sakfella hana fyrir hlutdeild í ráni. Þá hafi ekki verið rökstutt í dóminum á hvaða grundvelli hafi verið farið niður fyrir lögbundna lágmarksrefsingu sem lögð sé við broti gegn 2. mgr. 226. gr. almennra hegningarlaga. Ákæruvaldið tekur ekki undir sjónarmið sem færð eru fram í beiðninni.
7. Niðurstaða Landsréttar um sakfellingu leyfisbeiðanda og um önnur atriði að því leyti sem hún byggir á mati á sönnunargildi munnlegs framburðar verður ekki endurskoðuð fyrir Hæstarétti, sbr. 5. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Samkvæmt 4. málslið 4. mgr. 215. gr. laganna skal verða við ósk ákærðs manns, sem sýknaður er af ákæruefni í héraðsdómi en sakfelldur fyrir Landsrétti, um leyfi til áfrýjunar nema Hæstiréttur telji ljóst að áfrýjun muni ekki verða til þess að breyta dómi Landsréttar. Þar sem slíku verður ekki slegið föstu í tilviki leyfisbeiðanda verður beiðnin samþykkt.