Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-101
Mánudagurinn 5. október 2026
Íslenska ríkið (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)
gegn
A ehf. (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Lykilorð
Áfrýjunarleyfi. Skaðabótakrafa. Haldlagning. Vextir. Lögskýring. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Með beiðni 30. júní 2026 leitar íslenska ríkið leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 175. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja beint til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 3. sama mánaðar í máli nr. E-4890/2025: A ehf. gegn íslenska ríkinu. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.
3. Málið varðar kröfu gagnaðila um skaðabætur að fjárhæð 10.540.893 krónur, auk nánar tilgreindra vaxta, vegna tapaðrar ávöxtunar sem hann kveðst hafa orðið fyrir við það að héraðssaksóknari færði fjármuni, sem embættið haldlagði vegna rannsóknar á bókhalds- og skattalagabrotum eiganda gagnaðila, af innlánsreikningum í nafni gagnaðila yfir á reikninga í nafni embættisins sem höfðu lakari vaxtakjör en þeir reikningar sem féð hafði upphaflega verið geymt á. Krafan var reist á almennum reglum skaðabótaréttar, reglum um bótaábyrgð ríkissjóðs vegna athafna handhafa ríkisvalds og hlutlægri bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
4. Með héraðsdómi var fallist á að gagnaðili hefði orðið fyrir tjóni sem leyfisbeiðandi bæri bótaábyrgð á samkvæmt 246. gr. laga nr. 88/2008. Héraðsdómur féllst ekki á að gildissvið ákvæðisins væri takmarkað við bótarétt einstaklinga og taldi að með því að kröfum ákæruvalds um upptöku á fjármunum gagnaðila hefði verið hafnað með dómi Landsréttar hefði málið verið fellt niður í skilningi 1. mgr. ákvæðisins. Þrátt fyrir að héraðssaksóknari hefði víðtækar heimildir til að haldleggja fjármuni á bankareikningum og stofna sérstaka reikninga til vörslu fjármuna væri hann jafnframt bundinn af því að tryggja að verðmæti eigna rýrnaði ekki meðan á slíkum vörslum stæði. Væri því eðlilegt að hann bæri ábyrgð á því ef slík tilfærsla skilaði lakari ávöxtun. Þá féllst héraðsdómur ekki á að kröfur gagnaðila væru fyrndar, í heild eða að hluta, eða að bótaréttur gagnaðila yrði takmarkaður að öðru leyti.
5. Leyfisbeiðandi byggir á því að brýnt sé að dómur héraðsdóms sæti endurskoðun Hæstaréttar og telur öll skilyrði 1. mgr. 175. gr. laga nr. 91/1991 uppfyllt. Í því sambandi vísar hann til þess að málið geti haft almenna þýðingu fyrir beitingu réttarreglna og lúti að mikilvægum hagsmunum sínum. Þá byggir leyfisbeiðandi á því að dómur í málinu geti haft fordæmisgildi um skýringu 246. gr. laga nr. 88/2008, einkum um það hvort ákvæðið taki jafnt til einstaklinga og lögaðila, og um þær kröfur sem verði gerðar til héraðssaksóknara um ávöxtun og meðferð haldlagðs fjár. Eins telur leyfisbeiðandi verulega annmarka vera á forsendum og niðurstöðu héraðsdóms. Loks tekur leyfisbeiðandi fram að enginn ágreiningur sé uppi um sönnunargildi munnlegs framburðar sem gefinn var fyrir héraðsdómi og telur að ekki sé þörf á sérfróðum meðdómsmanni við úrlausn málsins á æðra dómstigi.
6. Að virtum gögnum málsins verður ekki talið að dómur í því hafi slíkt fordæmisgildi, almenna þýðingu fyrir beitingu réttarreglna eða verulega samfélagslega þýðingu að öðru leyti að efni séu til að veita heimild til að héraðsdómi verði áfrýjað beint til Hæstaréttar á grundvelli 1. mgr. 175. gr. laga nr. 91/1991. Af þeirri ástæðu verður beiðninni hafnað.