Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-113

Mánudagurinn 21. september 2026

S8 ehf. (Reimar Pétursson lögmaður)

gegn

íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttur ríkislögmaður)

Lykilorð

Kæruleyfi. Dómkvaðning matsmanns. Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Með beiðni leitar S8 ehf. leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að kæra ákvörðun Landsréttar 25. júní 2026 í máli nr. 360/2025: S8 ehf. gegn íslenska ríkinu. Gagnaðili leggur í mat réttarins hvort verða skuli við beiðninni.

3. Beiðni leyfisbeiðanda um kæruleyfi lýtur að ákvörðun Landsréttar 25. júní 2026 sem hann telur fela í sér höfnun á beiðni hans um dómkvaðningu matsmanna.

4. Fyrir liggur að við þingfestingu landsréttarmálsins lagði leyfisbeiðandi fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna. Hún var tekin fyrir í undirbúningsþinghaldi 27. ágúst 2025 af dómsformanni. Beiðninni var hafnað með rökstuddri ákvörðun 5. september sama ár. Með ákvörðun dómsformanns 20. nóvember sama ár var hafnað kröfu leyfisbeiðanda um að þrír dómarar réttarins tækju ákvörðun eða kvæðu upp úrskurð um ágreiningsefnið. Leyfisbeiðandi freistaði þess ekki að óska eftir leyfi til að kæra fyrrnefndar dómsathafnir Landsréttar til Hæstaréttar.

5. Með beiðni til héraðsdóms 1. desember 2025 fór leyfisbeiðandi þess á leit að dómkvaddir yrðu matsmenn til að leggja mat á sömu atriði og í þeirri matsbeiðni sem hafði verið lögð fram í Landsrétti við þingfestingu fyrrgreinds máls.

6. Með úrskurði héraðsdóms 19. febrúar 2026 var beiðninni vísað frá dómi á þeim grundvelli að Landsréttur hefði þegar tekið afstöðu til hennar og leyfisbeiðandi ekki sýnt fram á sérstaka þörf fyrir dómkvaðningu matsmanna fyrir héraðsdómi. Með úrskurði Landsréttar 20. mars sama ár í máli nr. 173/2026 var beiðni leyfisbeiðanda um dómkvaðningu matsmanna hafnað. Fram kom í úrskurðinum að Landsréttur hefði þegar tekið afstöðu til beiðni sóknaraðila með fyrri ákvörðun dómsformanns. Með ákvörðun Hæstaréttar nr. 2026-51 frá 28. apríl 2026 var beiðni um kæruleyfi vegna þessa úrskurðar Landsréttar hafnað.

7. Leyfisbeiðandi sendi Landsrétti á ný beiðni um dómkvaðningu matsmanna 30. apríl 2026. Hún var tekin fyrir í undirbúningsþinghaldi 28. maí 2026 af dómsformanni. Í endurriti þingbókar Landsréttar 25. júní 2026, sem send var lögmönnum 26. sama mánaðar, kom fram sú afstaða Landsréttar að matsbeiðnin væri sama efnis og fyrri matsbeiðni leyfisbeiðanda og þar sem þegar væri búið að taka afstöðu til og hafna henni, sbr. ákvörðun réttarins 5. september 2025, kæmi hún ekki til frekari skoðunar. Enn fremur var vísað til þess að frestur málsaðila til að ljúka gagnaöflun í málinu væri löngu liðinn.

8. Í kjölfarið áréttaði leyfisbeiðandi kröfu sína um að Landsréttur kvæði upp úrskurð um kröfu hans um dómkvaðningu matsmanna. Í svarbréfi réttarins 2. júlí 2026 kom fram að ekki yrði tekin afstaða til matsbeiðninnar þar sem hún væri sama efnis og fyrri matsbeiðni. Jafnframt sagði að dómarar í málinu væru komnir í sumarfrí og að erindi leyfisbeiðanda yrði ekki svarað fyrr en að því loknu. Það svar mun enn ekki hafa borist leyfisbeiðanda.

9. Leyfisbeiðandi byggir á því að fullnægt sé skilyrðum 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991. Í málinu reyni á atriði sem hafi fordæmisgildi um rétt til dómkvaðningar matsmanna við meðferð mála hjá Landsrétti, kæruheimildir vegna meðferðar mála þar, skyldu til að kveða upp úrskurði og úrræði til að bregðast við sé synjað um slíkt. Um grundvallaratriði við rekstur málsins sé að ræða, auk þess sem „úrskurður Landsréttar“ sé bersýnilega rangur að efni og formi. Þá vísar leyfisbeiðandi til þess að málatilbúnaður hans fái stoð í ákvörðun Hæstaréttar nr. 2026-83. Hann telur jafnframt að sá munur sé á málum þessum að dómsformaður í þessu máli hafi enn ekki tekið afstöðu til kröfu leyfisbeiðanda um úrskurð en það ráði ekki kæranleika ákvörðunarinnar, sbr. 13. tölulið ákvörðunar nr. 2026-83.

10. Sú ákvörðun sem beiðni leyfisbeiðanda lýtur að er tilkynning Landsréttar um að beiðni hans komi „ekki til frekari skoðunar“ þar sem matsbeiðni sama efnis hafi verið hafnað með ákvörðun 5. september 2025. Fyrir liggur að Landsréttur hefur ekki tekið afstöðu til kröfu leyfisbeiðanda um að kveðinn verði upp úrskurður um kröfuna. Krafa hans er að fyrrgreind ákvörðun verði felld úr gildi og aðallega að lagt verði fyrir Landsrétt að dómkveðja matsmenn samkvæmt beiðni leyfisbeiðanda en til vara að lagt verði fyrir Landsrétt að kveða upp úrskurð um hvort dómkveðja skuli matsmenn samkvæmt umræddri beiðni.

11. Sú ákvörðun Landsréttar sem kæra í máli þessu lýtur að leiddi ekki til lykta ágreining um dómkvaðningu matsmanna, enda hefur Landsréttur ekki enn tekið ákvörðun um hvort kveðinn verði upp úrskurður um ágreiningsefnið, eins og rétt er, sbr. dóm Hæstaréttar 17. september 2026 í máli nr. 28/2026. Að því gættu er ekki heimilt að kæra umrædda ákvörðun Landsréttar til Hæstaréttar á grundvelli 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991. Beiðninni er því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar