Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-87
Föstudagurinn 21. ágúst 2026
Avians ehf. (Stefán Geir Þórisson lögmaður)
gegn
Hilmari Hreinssyni (Gísli Guðni Hall lögmaður)
Lykilorð
Áfrýjunarleyfi. Viðurkenningarkrafa. Starfslok. Atvinnuréttindi. Kjarasamningur. Samþykkt
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Með beiðni 11. júní 2026 leitar Avians ehf. (áður Isavia ANS ehf.) leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 21. maí sama ár í máli nr. 848/2023: Hilmar Hreinsson gegn Avians ehf. Gagnaðili leggur í mat Hæstaréttar hvort skilyrði séu til að veita áfrýjunarleyfi.
3. Mál þetta lýtur að kröfu gagnaðila um að viðurkennt verði að leyfisbeiðanda hafi verið óheimilt að binda enda á störf hans hjá leyfisbeiðanda á grundvelli greinar 18.4.5 í kjarasamningi Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Isavia ohf. frá 31. maí 2011, sem síðar hefur verið framlengdur með tilgreindum breytingum á árunum 2016, 2020 og 2021.
4. Héraðsdómur sýknaði leyfisbeiðanda af kröfum gagnaðila. Landsréttur tók viðurkenningarkröfu hans aftur á móti til greina og lagði til grundvallar að óheimilt hefði verið að beita fyrrgreindu kjarasamningsákvæði á þann hátt sem leyfisbeiðandi gerði við starfslok gagnaðila er hann náði 63 ára aldri. Í þeim efnum var einkum vísað til þess að ákvæðið hefði orðið þýðingarlaust við afnám lagafyrirmæla um hámarksaldur flugumferðarstjóra en jafnframt til þess að beiting leyfisbeiðanda á kjarasamningsákvæðinu gagnvart gagnaðila hefði brotið í bága við 7. og 8. gr. laga nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði enda hefði skilyrðum til frávika samkvæmt 12. gr. laganna ekki verið fullnægt.
5. Leyfisbeiðandi byggir á því að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi, einkum um réttarstöðu flugumferðarstjóra á Íslandi, sem starfi nær allir hjá leyfisbeiðanda eða systur- eða móðurfélagi hans og séu um 150 talsins, sem og samningsfrelsi aðila, sérstaklega við kjarasamningsgerð. Þá varði úrslit málsins einnig sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda. Loks er á því byggt að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi og efni. Ranglega hafi verið komist að þeirri niðurstöðu að hið umþrætta kjarasamningsákvæði hafi orðið úrelt við afnám fyrirmæla í lögum um 63 ára aldurshámark flugumferðarstjóra. Ákvæðið sé afrakstur frjálsra samningaviðræðna aðila vinnumarkaðarins og njóti verndar 2. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar.
6. Að virtum gögnum málsins verður að telja að dómur í því kunni að hafa verulegt almennt gildi. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því samþykkt.