Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-100
Mánudagurinn 5. október 2026
Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Christa Hlín Lehmann, Daníel Þór Bjarnason, Elía Hörpu Önundarson, Lea María Lemarquis, Nerea Enriquez Santos, Pétur Eggerz Pétursson, Qussay Odeh og Steinunn Lukka Sigurðardóttir (Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður)
gegn
íslenska ríkinu (Sonja H. Berndsen lögmaður)
Lykilorð
Áfrýjunarleyfi. Tjáningarfrelsi. Fundafrelsi. Allsherjarregla. Lögregla. Meðalhóf. Miskabætur. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Sigurður Tómas Magnússon, Björg Thorarensen og Skúli Magnússon.
2. Með beiðni 29. júní 2026 leita Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Christa Hlín Lehmann, Daníel Þór Bjarnason, Elía Hörpu Önundarson, Lea María Lemarquis, Nerea Enriquez Santos, Pétur Eggerz Pétursson, Qussay Odeh og Steinunn Lukka Sigurðardóttir leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 4. sama mánaðar í máli nr. 294/2025: Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Christa Hlín Lehmann, Daníel Þór Bjarnason, Elía Hörpu Önundarson, Lea María Lemarquis, Nerea Enriquez Santos, Pétur Eggerz Pétursson, Qussay Odeh og Steinunn Lukka Sigurðardóttir gegn íslenska ríkinu. Gagnaðili leggst ekki gegn beiðninni.
3. Ágreiningur aðila lýtur að miskabótakröfum leyfisbeiðenda vegna aðgerða lögreglu við mótmæli sem félagið Ísland-Palestína boðaði til við hús umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytisins þar sem ríkisstjórnin kom saman til fundar 31. maí 2024. Lögregla var þar með viðbúnað en gekk erfiðlega að koma ráðherrum að fundarstað þar sem mótmælendur hindruðu för ráðherrabifreiða. Að fundi loknum reyndu nokkrir mótmælendur að hindra för ráðherrabifreiðar með því að leggjast á götuna eða standa í vegi fyrir henni. Í kjölfar þess að tekist hafði að koma fyrstu ráðherrabifreiðinni fram hjá hópnum beitti lögregla úðavopni gegn mótmælendum til þess að greiða leið fleiri ráðherrabifreiða. Leyfisbeiðendur fengu allir piparúða í andlitið. Aðilar deila um nauðsyn notkunar lögreglu á úðavopni og hvort valdbeitingin hafi samrýmst reglum um meðalhóf.
4. Með héraðsdómi var gagnaðili sýknaður af kröfum leyfisbeiðenda. Ekki var fallist á að lögregla hefði gengið fram með ólögmætum hætti og talið að notkun piparúðans hefði verið nauðsynlegur þáttur í stjórnun mannfjölda við þær aðstæður sem uppi hefðu verið þar sem fyrirmælum lögreglu hefði ekki verið sinnt og störf hennar hindruð. Landsréttur staðfesti dóm héraðsdóms. Vísaði rétturinn meðal annars til þess að þótt ekki væru efni til að leggja til grundvallar að mótmælin hefðu náð því stigi að vera ófriðsamleg útilokaði það ekki að réttlætanlegt gæti verið að lögregla gripi til þeirrar valdbeitingar sem um væri deilt í málinu.
5. Leyfisbeiðendur byggja á því að málið hafi verulegt almennt gildi um valdmörk lögreglu og heimildir til skerðingar á tjáningar- og fundafrelsi almennings. Sakarefnið hafi því verulega samfélagslega þýðingu um réttindi borgara við þátttöku í lýðræðislegri umræðu og mótmælum. Þá byggja þau á því að niðurstaða Landsréttar um að valdbeiting lögreglu hafi verið lögmæt og nauðsynleg sé bersýnilega röng. Með henni skapist fordæmi um að lögregla megi svara truflandi en friðsamlegum mótmælum með alvarlegri valdbeitingu án þess að sýnt sé fram á raunverulega hættu og án þess að vægari úrræði hafi verið reynd. Þá sé rökstuðningi héraðsdóms og Landsréttar verulega ábótavant.
6. Að virtum gögnum málsins verður hvorki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðenda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.