Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-95
Þriðjudagurinn 22. september 2026
Hreyfill svf. (Geir Gestsson lögmaður)
gegn
Reykjavíkurborg (Theodór Kjartansson lögmaður)
Lykilorð
Áfrýjunarleyfi. Stjórnvaldsákvörðun. Leigubifreiðar. Afnotaréttur. Stjórnsýsla. Hefð. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Með beiðni 23. júní 2026 leitar Hreyfill svf. leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 28. maí sama ár í máli nr. 330/2025: Hreyfill svf. gegn Reykjavíkurborg. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.
3. Ágreining aðila er að rekja til þess að leyfisbeiðanda var tilkynnt með bréfi 21. október 2019 að á fundi skipulags- og samgönguráðs gagnaðila 25. september sama ár hefði verið samþykkt að heimila öllum sem hefðu starfsleyfi til leigubifreiðaaksturs að leggja í bifreiðastæði sem leyfisbeiðandi hafði fram að því haft einn til afnota. Leyfisbeiðandi höfðaði mál gegn gagnaðila og krafðist þess að viðurkenndur yrði afnota- og umráðaréttur hans yfir tilgreindum bifreiðastæðum og að ógiltar yrðu tvær ákvarðanir gagnaðila. Annars vegar ákvörðun 16. janúar 2020 um að leyfisbeiðanda bæri að fjarlægja merkingar sínar á tilgreindum bifreiðastæðum en að öðrum kosti gert að greiða kostnað vegna þess og hins vegar 1. desember 2020 um að leyfisbeiðanda væri skylt að deila þeim bifreiðastæðum með „öðrum starfandi leigubílstjórum í Reykjavík“. Þá krafðist leyfisbeiðandi þess að ógiltur yrði úrskurður samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins 25. nóvember 2020 þar sem hafnað var kröfu leyfisbeiðanda um að ákvörðun gagnaðila 16. janúar 2020 yrði felld úr gildi. Til vara krafðist leyfisbeiðandi viðurkenningar á bótaskyldu gagnaðila vegna fyrrgreindra ákvarðana og sviptingu réttinda yfir nánar tilteknum bifreiðastæðum fyrir leigubifreiðar.
4. Með héraðsdómi var viðurkenningarkröfum leyfisbeiðanda vísað frá dómi og gagnaðili sýknaður af öðrum kröfum. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um frávísun með úrskurði 19. maí 2025 í máli nr. 302/2025. Leyfisbeiðandi óskaði eftir leyfi Hæstaréttar til að kæra þann úrskurð Landsréttar. Þeirri beiðni var hafnað með ákvörðun Hæstaréttar í máli nr. 2025-105.
5. Með dómi Landsréttar í málinu var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu gagnaðila af ógildingarkröfum leyfisbeiðanda. Rétturinn vísaði til þess að þótt uppi væri nokkur óvissa um hvenær gagnaðili tók hinar umdeildu ákvarðanir væri við mat á lögvörðum hagsmunum leyfisbeiðanda af kröfum sínum til þess að líta að skýrlega lægi fyrir hverjar ákvarðanirnar væru. Að því virtu og með hliðsjón af 70. gr. stjórnarskrárinnar um rétt manna til að bera mál undir dómstóla þóttu ekki efni til að vísa kröfum leyfisbeiðanda frá dómi á þeim grunni að þær beindust ekki að réttum ákvörðunum gagnaðila. Í dómi Landsréttar kom fram að leyfisbeiðandi bæri sönnunarbyrði fyrir því að hann hefði fyrir hefð áunnið sér rétt til afnota af bifreiðastæðunum sem kæmi í veg fyrir að gagnaðili gæti gert honum að fjarlægja merkingar og heimilað öðrum að nota þau ásamt leyfisbeiðanda. Að þessu leyti væri málatilbúnaður leyfisbeiðanda mjög almenns eðlis og ófullnægjandi um stóran hluta þeirra stæða sem ákvarðanir gagnaðila tóku til. Þá yrði leyfisbeiðandi ekki talinn hafa getað vænst þess að afnot hans að bifreiðastæðunum, sem gagnaðili hefði átt og hefðu verið háð samþykki, leyfum og skilyrðum hans, tryggðu honum eignarréttindi sem kæmu í veg fyrir að gagnaðili gæti gert hinar umdeildu breytingar á stæðunum. Við mat á því hvort ákvarðanir gagnaðila hefðu samrýmst reglum stjórnsýsluréttar var meðal annars litið til þess að þær fólu ekki í sér að leyfisbeiðandi hefði verið sviptur afnotum stæðanna, enda hefði hann enn afnot af þeim með öðrum og hefði að sama skapi fengið afnot af bifreiðastæðum sem aðrar bifreiðastöðvar höfðu áður samsvarandi leyfi fyrir.
6. Leyfisbeiðandi byggir á því að úrlausn málsins hafi verulegt almennt gildi um hvenær stjórnvaldsákvörðun sé tekin og hvenær stjórnsýslumáli lýkur. Auk þess varði sakarefnið mörk beins eignarréttar sveitarfélags og óbeinna eignarréttinda einkaaðila og hafi úrlausn um þau mörk verulegt almennt gildi. Nauðsynlegt sé að Hæstiréttur skeri úr um hvort leyfisbeiðandi eigi samningsbundinn afnotarétt og hvort hann hafi á grundvelli hefðar áunnið sér slíkan rétt. Hafi sakarefnið því almennt gildi á sviði eigna- og samningaréttar. Þá lúti málið að mikilvægum hagsmunum leyfisbeiðanda. Loks sé dómur Landsréttar bersýnilega rangur að efni þar sem lagt hafi verið til grundvallar að leyfisbeiðandi hafi ekki verið sviptur afnotum sínum af umræddum bifreiðastæðum.
7. Að virtum gögnum málsins verður hvorki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.