Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

Mál nr. 2019-134

Þriðjudagurinn 21. maí 2019

Óshæð ehf., Harpa Kristjánsdóttir og Sigurður Strange (Þórhallur Haukur Þorvaldsson lögmaður)

gegn

Agnari Hlyni Daníelssyni og Maríu Dögg Aðalsteinsdóttur (Finnur Magnússon lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Brottflutningur mannvirkis. Byggingarleyfi. Hafnað. Skipulag

Ákvörðun Hæstaréttar.

Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Helgi I. Jónsson og Markús Sigurbjörnsson.

Með beiðni 17. apríl 2019 leita Óshæð ehf., Harpa Kristjánsdóttir og Sigurður Strange leyfis Hæstaréttar til að áfrýja dómi Landsréttar 22. mars sama ár í málinu nr. 568/2018: Agnar Hlynur Daníelsson og María Dögg Aðalsteinsdóttir gegn Óshæð ehf., Sigurði Strange og Hörpu Kristjánsdóttur, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Agnar Hlynur Daníelsson og María Dögg Aðalsteinsdóttir leggjast gegn beiðninni.

Mál þetta lýtur að kröfu gagnaðila um að leyfisbeiðendum verði gert að fjarlægja grjóthleðslu á lóðarmörkum fasteigna leyfisbeiðendanna Hörpu og Sigurðar og gagnaðila að viðlögðum dagsektum. Reisa gagnaðilar kröfu sína einkum á því að grjóthleðslan sé í andstöðu við skipulagsskilmála, samþykktar teikningar og byggingarleyfi varðandi fasteign þessara leyfisbeiðenda. Héraðsdómur sýknaði leyfisbeiðendur af kröfu gagnaðila en Landsréttur tók hana á hinn bóginn til greina með fyrrnefndum dómi.

Leyfisbeiðendur byggja á því að dómur Landsréttar sé rangur að efni til. Vísa þau meðal annars til þess að dómurinn sé ekki til þess fallinn að leysa úr þeim ágreiningi sem uppi sé þar sem krafa gagnaðila snúi einungis að því að fjarlægja umrædda grjóthleðslu. Hún lúti á hinn bóginn í engu að frágangi lóðarmarka að öðru leyti þannig að unnt verði að koma þeim í lögmætt horf en fyrir liggi að lóð gagnaðila standi tölvuvert lægra en gert sé ráð fyrir í skipulagsskilmálum. Sé krafa gagnaðila ekki dómtæk af þessum sökum. Þá hafi málsmeðferð fyrir Landsrétti verið stórlega ábótavant þar sem þörf hafi verið á sérkunnáttu í málinu og hefði því borið að kveðja til sérfróðan meðdómsmann, sbr. 2. gr. a. laga nr. 91/1991. Telja leyfisbeiðendur jafnframt að málið hafi verulegt almennt gildi um túlkun á ákvæðum skipulagslaga nr. 123/2010 og efni skipulagsskilmála sem taki til stærra svæðis. Loks byggja þau á því að málið varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni þeirra.

Að virtum gögnum málsins er hvorki unnt að líta svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðenda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að að málsmeðferð fyrir Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant eða að dómur réttarins sé bersýnilega rangur að efni til, sbr. 3. málslið sömu málsgreinar. Er beiðninni því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar