Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-97

Fimmtudagurinn 1. október 2026

A (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)

gegn

Reykjavíkurborg (Dagmar Arnardóttir lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Skaðabætur. Fjártjón. Bætur að álitum. Sönnun. Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Með beiðni 24. júní 2026 leitar A leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 4. sama mánaðar í máli nr. 340/2025: A gegn Reykjavíkurborg. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.

3. Mál þetta á rætur að rekja til þess að leyfisbeiðandi var tímabundið svipt stafsleyfi til daggæslu barna í heimahúsi af hálfu starfsmanns gagnaðila árið 2019. Hún höfðaði í kjölfarið mál og krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu gagnaðila vegna sviptingarinnar. Úr þeim ágreiningi var leyst með dómi Landsréttar 8. apríl 2022 í máli nr. 243/2021. Fallist var á viðurkenningarkröfu leyfisbeiðanda á þeim grunni að gagnaðili hefði sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi með þeirri ákvörðun sviðstjóra skóla- og frístundasviðs að svipta leyfisbeiðanda tímabundið starfsleyfi þar sem starfsmann gagnaðila hefði skort heimild til að taka slíka ákvörðun. Leyfisbeiðandi var jafnframt talin hafa leitt nægar líkur að því að hún hefði orðið fyrir tjóni vegna hinnar ólögmætu sviptingar og fallist á kröfu hennar um að viðurkenndur yrði réttur til skaðabóta úr hendi gagnaðila. Leyfisbeiðandi höfðaði mál að nýju á hendur gagnaðila og krafðist nánar tilgreindrar fjárhæðar í skaðabætur, meðal annars vegna starfsleyfissviptingarinnar. Einkum er deilt um hvort leyfisbeiðandi hafi í reynd orðið fyrir tjóni vegna athafna gagnaðila og eftir atvikum um umfang slíks tjóns.

4. Með héraðsdómi var gagnaðili sýknaður af skaðabótakröfu leyfisbeiðanda á þeim grundvelli að ekki hefði tekist sönnun þess að hún hefði orðið fyrir tjóni vegna sviptingarinnar. Þá komst héraðsdómur að þeirri niðurstöðu að leyfisbeiðandi hefði ekki sýnt fram á að skilyrði væru til að fallast á skaðabótaábyrgð gagnaðila vegna tafa á afgreiðslu endurnýjaðs starfsleyfis hennar. Meðal þess sem vísað var til var að tafirnar mætti að mestu leyti rekja til háttsemi hennar sjálfrar auk þess sem hún hefði viðurkennt að hún hefði í reynd ekki ætlað sér að hefja slík störf að nýju. Loks hafnaði héraðsdómur þrautavarakröfu leyfisbeiðanda um bætur að álitum vegna starfsleyfissviptingarinnar. Gagnaðili var þannig sýknaður af öllum kröfum hennar. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sýknu gagnaðila með vísan til forsendna hans.

5. Leyfisbeiðandi byggir á því að úrslit málsins hafi verulega almenna þýðingu, einkum um það álitaefni hvenær telja skuli einstakling hafa axlað sönnunarbyrði um fjárhæð tjóns og hvenær rétt sé þess í stað að dæma honum bætur að álitum. Úrlausn málsins varði jafnframt sérstaklega mikilvæga hagsmuni hennar enda miklir fjárhagslegir hagsmunir í húfi. Þá telur leyfisbeiðandi dóm Landsréttar bersýnilega rangan að efni. Kröfu hennar um skaðabætur hafi verið hafnað í heild þrátt fyrir að fyrir lægi matsgerð dómkvadds tryggingastærðfræðings um fjárhagslegt tjón hennar, í andstöðu við dómaframkvæmd Hæstaréttar um að dæma skuli bætur að álitum þegar sönnunarkröfur um nákvæma fjárhæð tjóns verða taldar of strangar. Að þessu leyti hafi málið einnig verulega almenna þýðingu.

6. Að virtum gögnum málsins verður hvorki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar