Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-126

Miðvikudagurinn 21. október 2026

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari)

gegn

Snorra Guðmundssyni (Karl Georg Sigurbjörnsson lögmaður) og Sverri Þór Gunnarssyni (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Tollalagabrot. Upptaka. Aðflutningsgjald. Fyrning. Ákæra. Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ásgerður Ragnarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Með beiðnum 18. og 23. júní 2026 leita Snorri Guðmundsson og Sverrir Þór Gunnarsson leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 21. maí sama ár í máli nr. 138/2025: Ákæruvaldið gegn Snorra Guðmundssyni, Sverri Þór Gunnarssyni og SSLL444 ehf. Leyfisbeiðendum var birtur dómurinn 28. maí 2026. Ákæruvaldið leggst gegn beiðnunum.

3. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu leyfisbeiðenda fyrir stórfelld brot gegn lögum nr. 96/1995 um gjald af áfengi, tóbaki, nikótíni o.fl. og tollalögum nr. 88/2005 með því að hafa í sameiningu sem fyrirsvarsmenn Áfengis og tóbaks ehf., síðar SSLL444 ehf., í níu tilvikum á árunum 2015 til 2018, veitt íslenskum tollyfirvöldum rangar og villandi upplýsingar þegar félag þeirra flutti inn til landsins reyktóbak og vindlinga frá nánar tilgreindum erlendum fyrirtækjum. Leyfisbeiðendur hafi komið því til leiðar að starfsmaður hjá Thor Shipping ehf., sem sinnti tollskjalagerð í umboði félagsins, tilgreindi rangar vörutegundir, nánar tiltekið prótein og pappírsvörur, í aðflutningsskýrslum fyrir tollafgreiðslu, með tilteknum tollskrárnúmerum. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að leyfisbeiðendur sættu fangelsi í tvö ár bundið skilorði. Þá var sekt hvors leyfisbeiðanda um sig lækkuð í 740.742.386 krónur en héraðsdómur hafði gert hvorum um sig að greiða 1.100.000.000 króna sekt. Þá voru staðfest ákvæði héraðsdóms um upptöku verðmæta.

4. Leyfisbeiðandi Snorri byggir á því að málið hafi slíka þýðingu og kunni að hafa svo ríkt fordæmisgildi að nauðsynlegt sé að Hæstiréttur taki það til úrlausnar. Leyfisbeiðandinn vísar til viðtals á netmiðli við Eirík Elís Þorláksson um málið í kjölfar þess að héraðsdómur gekk í því en hann var meðal dómara málsins í Landsrétti. Með hliðsjón af viðtalinu telur leyfisbeiðandi að úrlausn Hæstaréttar um vanhæfi dómarans í málinu kunni að hafa almenna þýðingu fyrir traust almennings á dómstólum og sérstaka þýðingu fyrir leyfisbeiðanda. Þá telur leyfisbeiðandinn það ranga niðurstöðu hjá Landsrétti að sakfella hann á grundvelli þeirra fjárhæða sem tilgreindar hafi verið í ákæru sem tóbaksgjald. Í ákæru hafi komið fram að virðisaukaskattur væri hluti útreiknings ákæruvalds en tóbaksgjaldið samkvæmt ákæru hafi innifalið virðisaukaskatt enda þótt honum hafi ekki verið gefið að sök brot gegn lögum nr. 50/1998 um virðisaukaskatt. Þá sé rangt að lögbundið tóbaksgjald geti fallið undir 1. mgr. 172. gr. tollalaga. Enn fremur hafi í töflu í ákæru verið tilgreint rangt tóbaksgjald. Leyfisbeiðandi vísar einnig til þess að ranglega hafi verið staðið að álagningu eða áætlun ætlaðs undanskots tóbaksgjalds. Það hafi verið lagt á eða áætlað af starfsmanni héraðssaksóknara en lögum samkvæmt sé það hlutverk Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Þessi villa valdi ómerkingu hins áfrýjaða dóms eða frávísun málsins. Einnig telur leyfisbeiðandi að niðurstaða Landsréttar um fyrningu hafi verið röng og að brot gegn málshraðareglunni hefði átt að leiða til niðurfellingar á refsingu. Hann vísar til þess að niðurstaða um upptökukröfur hafi verið röng en hvergi í gögnum málsins sé að finna með hvaða hætti hann eigi að hafa notið ávinnings af meintum brotum á lögum um gjald af áfengi og tóbaki. Upptaka á eignum leyfisbeiðanda sé í raun fésekt til viðbótar við dæmda fésekt og hér eigi því við sjónarmið um ne bis in idem.

5. Leyfisbeiðandi Sverrir Þór byggir á því að skilyrði 4. mgr. 215. gr laga nr. 88/2008 séu uppfyllt þar sem í málinu sé tekist á um atriði sem hafi verulega almenna þýðingu auk þess sem málsmeðferð á báðum dómstigum hafi verið stórlega ábótavant og dómur Landsréttar bersýnilega rangur að formi og efni. Í því tilliti vísar hann til óskýrleika ákæru þar sem virðisaukaskattur sé ekki hluti gjalds af tóbaki og um upptöku eigna. Þá sé niðurstaða dóms Landsréttar um fyrningu sakar röng auk þess sem brotið hafi verið gegn málshraða- og jafnréttisreglu. Loks vísar hann til þess að Eiríkur Elís Þorláksson dómari hafi verið vanhæfur vegna viðtals í kjölfar héraðsdóms í málinu.

6. Að virtum gögnum málsins verður hvorki séð að það lúti að atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu né að mjög mikilvægt sé af öðrum ástæðum að fá úrlausn Hæstaréttar um þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Þá eru ekki efni til að beita heimild 3. málsliðar 4. mgr. sömu lagagreinar í málinu. Er þá þess að gæta að almenn umfjöllun fyrrgreinds dómara Landsréttar í netmiðli um héraðsdóm í málinu gerði hann ekki vanhæfan til meðferðar þess. Beiðnunum er því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar