Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

Mál nr. 2026-62

Mánudagurinn 22. júní 2026

Þrotabú WOW air hf. (Þorsteinn Einarsson lögmaður)

gegn

Greater Toronto Airports Authority (Kristinn Hallgrímsson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Gjaldþrotaskipti. Riftun. Endurgreiðsla. Þrotabú. Samþykkt

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Ása Ólafsdóttir, Karl Axelsson og Skúli Magnússon.

2. Með beiðni 19. apríl 2026 leitar þrotabú WOW air hf. leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 26. mars sama ár í máli nr. 982/2024: Greater Toronto Airports Authority gegn þrotabúi WOW air hf. og gagnsök. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.

3. Leyfisbeiðandi, sem er þrotabú flugfélagsins WOW air hf., höfðaði mál þetta til riftunar ráðstafana samkvæmt XX. kafla laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Krafðist hann riftunar sex greiðslna að fjárhæð 394.716 kanadadala sem inntar voru af hendi af hálfu félagsins til gagnaðila skömmu fyrir gjaldþrot þess 28. mars 2019. Byggði hann aðallega á 1. mgr. 134. gr. laganna en til vara 141. gr. og krafðist endurgreiðslu úr hendi gagnaðila. Jafnframt höfðaði hann mál þetta til greiðslu skaðabóta sömu fjárhæðar á hendur forstjóra félagsins og nánar tilgreindum stjórnarmönnum þess.

4. Héraðsdómur taldi skilyrði riftunar samkvæmt 1. mgr. 134. gr. laga nr. 21/1991 ekki fyrir hendi en féllst á riftun á grundvelli 141. gr. laganna. Gagnaðila var gert að endurgreiða fyrrgreinda fjárhæð, sbr. 3. mgr. 142. gr. laga nr. 21/1991. Forstjóri félagsins og stjórnarmenn voru ekki taldir hafa sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi þannig að varðaði skaðabótaskyldu og þeir sýknaðir af kröfum leyfisbeiðanda. Fyrir Landsrétti voru einungis til úrlausnar kröfur leyfisbeiðanda á hendur gagnaðila. Landsréttur taldi ekki koma til álita að rifta fyrrgreindum greiðslum á grundvelli 1. mgr. 134. gr. laga nr. 21/1991. Þá var ekki heldur fallist á riftun á grundvelli 141. gr. laganna og í þeim efnum vísað til þess að framganga gagnaðila í tilefni af vanskilum flugfélagsins hefði ekki vikið svo frá eðlilegum viðskiptaháttum eða háttsemi þess verið svo ámælisverð að rétt væri að virða hinar umdeildu ráðstafanir þannig að þær teldust ótilhlýðilegar í skilningi ákvæðisins. Jafnframt hefðu ekki verið færðar viðhlítandi sönnur á að gagnaðili hefði mátt vita hvernig flugfélagið hagaði almennt greiðslu skulda á þessum tíma eða önnur atriði sem leiddu til þess að ráðstöfunin teldist ótilhlýðileg. Var leyfisbeiðandi látinn bera hallann af þeim sönnunarskorti og gagnaðili sýknaður af kröfum leyfisbeiðanda.

5. Leyfisbeiðandi byggir á því að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi um beitingu 1. mgr. 134. gr. laga nr. 21/1991, einkum um þau riftunarskilyrði greinarinnar að greiðsla hafi verið innt af hendi fyrr en eðlilegt var eða hún skert greiðslugetu þrotamanns verulega. Hvað hið síðarnefnda varðar vísar leyfisbeiðandi til þess að í málinu reyni á hvort miða eigi hlutfall greiðslu við handbært fé yfir lengri tíma eða stöðu á bankareikningum þrotamanns þegar hún fór fram. Úrslit málsins hafi jafnframt fordæmisgildi um 141. gr. laga nr. 21/1991. Þá telur leyfisbeiðandi niðurstöðu Landsréttar um sýknu af riftun á grundvelli síðastnefnda ákvæðisins bersýnilega ranga. Gagnaðili hafi hótað að loka fyrir aðgang flugfélagsins að flugvelli í Kanada yrði skuldin ekki greidd og greiðslan ótilhlýðileg af þeim sökum. Jafnframt sé ljóst að félagið hafi verið ógjaldfært þegar greiðslan var innt af hendi og óumdeilt að gagnaðili hafi verið upplýstur um fjárhagserfiðleika þess á þeim tíma. Þá sé mikilvægt að Hæstiréttur skeri úr um hver beri sönnunarbyrði um tímabundna ógjaldfærni. Loks telur leyfisbeiðandi úrslit málsins varða sérstaklega mikilvæga hagsmuni sína enda allar líkur á að samþykktar forgangskröfur muni greiðast að fullu verði fallist á kröfur leyfisbeiðanda í fyrirliggjandi máli og öðrum sem samhliða er sótt um leyfi til áfrýjunar fyrir.

6. Að virtum gögnum málsins verður litið svo á að dómur í því kunni að hafa verulegt almennt gildi um þau atriði sem leyfisbeiðandi byggir á þannig að fullnægt sé skilyrðum 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því samþykkt.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar