Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-107

Miðvikudagurinn 14. október 2026

Íslenska ríkið (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)

gegn

Hótel Keflavík ehf. (Stefán Geir Þórisson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Ógilding stjórnvaldsákvörðunar. Lögskýring. Laun. Uppsagnarfrestur. Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ásgerður Ragnarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Með beiðni 6. júlí 2026 leitar íslenska ríkið leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 11. júní sama ár í máli nr. 403/2025: Íslenska ríkið gegn Hótel Keflavík ehf. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.

3. Gagnaðili fékk fjárstuðning frá leyfisbeiðanda á grundvelli laga nr. 50/2020 um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti. Með ákvörðun Skattsins 15. nóvember 2021 var fjárstuðningurinn endurákvarðaður hvað varðaði launakostnað á uppsagnarfresti vegna tveggja uppkominna dætra eiganda gagnaðila og sá kostnaður ekki talinn styrkhæfur samkvæmt fyrrgreindum lögum. Í kjölfarið endurgreiddi gagnaðili fjárstuðninginn að þessu leyti og höfðaði mál á hendur leyfisbeiðanda til ógildingar á ákvörðuninni og endurgreiðslu. Aðilar deila einkum um hvaða skilning beri að leggja í orðið launakostnað í 1. mgr. 4. gr. laga nr. 50/2020 og hvaða þýðingu það hafi að í 4. tölulið 3. gr. laganna sé launakostnaður skilgreindur einungis með tilvísun til 1. töluliðar 5. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda en ekki 2. töluliðar sömu greinar.

4. Með héraðsdómi var komist að þeirri niðurstöðu að umræddur launakostnaður hefði verið styrkhæfur í skilningi laga nr. 50/2020 og kröfur gagnaðila teknar til greina. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms og vísaði meðal annars til þess að hvorki í lögum nr. 50/2020 né lögskýringargögnum væri kveðið á um að launakostnaður vegna tiltekinna launamanna væri undanskilinn. Yrði fallist á þann skýringarkost sem leyfisbeiðandi teldi réttan yrði að gagnálykta frá skilgreiningu 4. töluliðar 3. gr. laganna þannig að önnur regla en mælt væri fyrir um í 4. gr. laganna ætti við um þá launamenn sem gætu fallið undir 2. tölulið 5. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda. Sá lögskýringarkostur fengi ekki staðist gagnvart uppkomnum dætrum eiganda gagnaðila. Einnig var vísað til þess að fyrir dómi hefði ekki verið dregið í efa að dæturnar hefðu verið launamenn hjá félaginu í skilningi laganna og að þær hefðu á uppsagnarfresti fengið greidd laun á grundvelli ráðningarsamnings sem efnislega félli undir hugtakið launakostnað samkvæmt þeim skilningi sem bæri að leggja í 4. tölulið 3. gr. laga nr. 50/2020.

5. Leyfisbeiðandi byggir á því að öll skilyrði 176. gr. laga nr. 91/1991 séu fyrir hendi. Úrslit málsins hafi fordæmisgildi um stöðu þeirra sem beri að reikna sér endurgjald og þeirra sem séu þeim tengdir. Þá lúti þau að mikilsverðum hagsmunum ríkisins. Loks byggir leyfisbeiðandi á því að niðurstaða Landsréttar sé röng enda komi fram í 4. tölulið 1. mgr. 3. gr. laganna að til launakostnaðar teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt 1. tölulið 5. gr. laga nr. 45/1987 en um launakostnað dætra eiganda gagnaðila sé fjallað í 2. tölulið sömu greinar og hann því ekki styrkhæfur. Með þessari afmörkun sé að mati leyfisbeiðanda ljóst að allur launakostnaður sem heyri undir 2. tölulið 5. gr. laga nr. 45/1987 falli utan gildissviðs laga nr. 50/2020. Í löggjöf og skattaframkvæmd sé gerður skýr greinarmunur á almennum launþegum og ráðandi aðilum í atvinnurekstri sem og aðilum þeim tengdum. Að mati leyfisbeiðanda sé skýrt að tilvísun til 1. töluliðar 5. gr. laga nr. 45/1987 útiloki að ráðandi aðilar í atvinnurekstri eða tengdir aðilar falli undir gildissvið laganna. Lögum nr. 50/2020 hafi einungis verið ætlað að mæta kjarasamningsbundnum launum og styðja við réttindi almennra launþega á uppsagnartíma en ekki taka til ráðandi aðila í rekstri, maka eða barna þeirra sem hafi borið að reikna sér endurgjald samkvæmt 2. tölulið 5. gr. laga nr. 45/1987, sbr. 58. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.

6. Að virtum gögnum málsins verður hvorki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar