Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

Mál nr. 2025-75

Þriðjudagurinn 24. júní 2025

A (Gísli Guðni Hall lögmaður)

gegn

Isavia ANS ehf. (Stefán Geir Þórisson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Hafnað. Kjarasamningur. Ráðningarsamningur. Túlkun samnings. Uppsögn

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen og Skúli Magnússon.

2. Með beiðni 16. apríl 2025 leitar A leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 20. mars sama ár í máli nr. 89/2024: A gegn Isavia ANS ehf. Gagnaðili leggur í mat Hæstaréttar hvort skilyrði séu til að verða við beiðninni.

3. Mál þetta lýtur að kröfu leyfisbeiðanda um viðurkenningu skaðabótaskyldu vegna ákvörðunar gagnaðila um að segja honum upp störfum. Leyfisbeiðandi starfaði sem flugumferðarstjóri hjá Isavia ohf. og starfaði meðal annars við kennslu í flugumferðarstjórn hjá gagnaðila, dótturfélagi Isavia ohf.

4. Með dómi Landsréttar var héraðsdómur staðfestur um sýknu gagnaðila. Þar kemur fram að í bréfi um ástæður uppsagnar hafi verið vísað til alvarlegra brota leyfisbeiðanda gegn siðareglum og viðbragðsáætlun. Uppsögnin átti þann aðdraganda að nemi í flugumferðarstjórn kærði leyfisbeiðanda og samstarfsmann hans fyrir kynferðisbrot á heimili leyfisbeiðanda. Rannsókn málsins var síðar felld niður af héraðssaksóknara en í bréfi um niðurfellingu málsins kom fram að leyfisbeiðandi hefði gengist við í framburði hjá lögreglu að hafa haft samfarir við kærandann. Aðila greindi einkum á um hvort leyfisbeiðandi hefði orðið uppvís að „grófu broti í starfi“ í skilningi samkomulags Isavia ohf. og Félags íslenskra flugumferðarstjóra í tengslum við kjarasamning. Vísaði Landsréttur jafnframt til siðareglna Isavia ohf. en samkvæmt 2. gr. þeirra bar leyfisbeiðanda að varast að framkoma hans varpaði rýrð á starf hans eða gagnaðila, „hvort sem er innan þess eða utan“, en talið var ljóst að ákvörðun um uppsögn hefði byggst á því ákvæði siðareglnanna. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að í ljósi atvika, siðareglna Isavia ohf. og þeirra krafna sem gera yrði til starfsemi gagnaðila yrði að leggja til grundvallar að honum hefði verið heimilt að segja leyfisbeiðanda upp störfum, enda hefðu hvorki fyrirmæli laga, kjarasamningsins sjálfs né annarra heimilda staðið því í vegi. Þá var það ekki metið gagnaðila til sakar þótt hann hefði ekki hlutast til um frekari rannsókn á grundvelli reglugerðar nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum, sbr. lög nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

5. Leyfisbeiðandi byggir á því að málið hafi verulegt almennt gildi. Dómur Landsréttar sé í andstöðu við fordæmi Hæstaréttar og málið hafi fordæmisgildi um hvort réttlætanlegt sé, að teknu tilliti til sérstakrar uppsagnarverndar samkvæmt kjarasamningi, að vinnuveitandi segi starfsmanni upp á grundvelli ósannaðrar ásökunar um nauðgun. Þá sé dómur Landsréttar rangur að efni til.

6. Að virtum gögnum málsins verður hvorki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.

https://landsrettur.is/domar-og-urskurdir/domur-urskurdur/?id=2d77acc6-31ac-4639-a857-37d4158e9e4c&verdictid=38dccab6-1e48-44f1-9347-e55006556cd3

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar