Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

Mál nr. 2019-300

Mánudagurinn 18. nóvember 2019

A (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður)

gegn

Barnaverndarnefnd Kópavogs (Þyrí H. Steingrímsdóttir lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Börn. Forsjársvipting. Fötlun. Hafnað. Mannréttindasáttmáli Evrópu. Stjórnarskrá

Ákvörðun Hæstaréttar

Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson.

Með beiðni 30. október 2019 leitar A leyfis Hæstaréttar til að áfrýja dómi Landsréttar 4. sama mánaðar í málinu nr. 337/2019: A gegn barnaverndarnefnd Kópavogs, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Barnaverndarnefnd Kópavogs leggst gegn beiðninni.

Mál þetta lýtur að kröfu Barnaverndarnefndar Kópavogs um að leyfisbeiðandi verði svipt forsjá fjögurra barna sinna á grundvelli 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Héraðsdómur féllst á að skilyrði greinarinnar væru uppfyllt og tók til greina fyrrnefnda kröfu gagnaðila. Landsréttur staðfesti þá niðurstöðu.

Leyfisbeiðandi rökstyður beiðni sína með vísan til þess að málið hafi verulegt almennt gildi. Í þeim efnum skírskotar hún til þess að ráðstafanir gagnaðila hafi ekki miðað að fjölskyldusameiningu líkt og lög geri ráð fyrir og hafi framkvæmdin brotið í bága við 71. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá hafi í dómi Landsréttar ekki verið fjallað um þessa málsástæðu leyfisbeiðanda og á hvorugu dómstigi hafi verið rökstudd nægilega nauðsyn forsjársviptingar í tilviki hvers og eins barns. Leyfisbeiðandi byggir jafnframt á að hún hafi ekki notið sérstakrar verndar sem fötluð kona á grundvelli jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar, samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, auk þess sem úrræði gagnaðila geti ekki talist hafa verið reynd til þrautar í skilningi 2. mgr. 29. gr. laga nr. 80/2002. Loks varði málið sérstaklega mikilvæga hagsmuni sína.

Að virtum gögnum málsins er hvorki unnt að líta svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Verður jafnframt að gæta að því að þótt málið varði mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda er svo einnig ástatt endranær í málum sem varða forsjá barna og skyld málefni þeirra, en ekki verður séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni til. Er beiðni um áfrýjunarleyfi því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar