Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

Mál nr. 2026-76

Þriðjudagurinn 30. júní 2026

Kristinn Gylfi Jónsson (Helgi Jóhannesson lögmaður)

gegn

Emmu Kristine Holm (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Sjálfskuldarábyrgð. Endurkrafa. Dráttarvextir. Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Sigurður Tómas Magnússon, Ása Ólafsdóttir og Skúli Magnússon.

2. Með beiðni 18. maí 2026 leitar Kristinn Gylfi Jónsson leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 22. apríl sama ár í máli nr. 268/2025: Kristinn Gylfi Jónsson gegn Emmu Kristine Holm og gagnsök. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.

3. Mál þetta lýtur að óskiptri sjálfskuldarábyrgð leyfisbeiðanda og gagnaðila á yfirdráttarheimild einkahlutafélagsins Vistveru á veltureikningi þess hjá Íslandsbanka hf. Gagnaðili gerði upp skuldina á grundvelli fyrrgreindrar ábyrgðar og höfðaði í kjölfarið mál þetta. Ágreiningur aðila lýtur að því hvort gagnaðili eigi rétt til greiðslu helmings þess sem hún greiddi bankanum úr hendi leyfisbeiðanda, samtals 2.650.000 krónur.

4. Með héraðsdómi var fallist á endurgreiðslukröfu gagnaðila en leyfisbeiðandi sýknaður af dráttarvaxtakröfu. Með vísan til skilmála ábyrgðaryfirlýsingarinnar, almennra reglna kröfuréttar, dómafordæma um rétt ábyrgðarmanns til endurkröfu á hendur meðábyrgðarmanni og þess að ósannað þótti að gagnaðili og leyfisbeiðandi hefðu gert samkomulag sín á milli um þessa ábyrgð var fallist á kröfu gagnaðila um að leyfisbeiðanda bæri að standa henni skil á helmingi þeirrar fjárhæðar sem hún hafði þurft að standa bankanum skil á vegna uppgreiðslu ábyrgðarinnar. Landsréttur staðfesti héraðsdóm með vísan til forsendna en gerði leyfisbeiðanda að greiða dráttarvexti frá 14. júní 2024. Var þá miðað við að mánuður hefði þá verið liðinn frá því gagnaðili sendi innheimtuviðvörun.

5. Leyfisbeiðandi byggir á því að málið varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni sína. Óumdeilt sé að með samkomulagi og kaupsamningi frá nóvember 2021 hafi hann og gagnaðili slitið samstarfi og sameiginlegu viðskiptasambandi. Við verðmat félaganna sem skiptu um hendur þeirra í milli var ekki gert ráð fyrir að leyfisbeiðandi tæki að sér neinar skuldbindingar Vistveru ehf. Hefði þurft að taka sérstaklega fram ef hann, algjörlega ótengdur aðili að rekstri félagsins eftir viðskiptin, hefði átt að halda áfram að bera ábyrgð á skuldbindingum félagsins. Ef ábyrgð leyfisbeiðanda gagnvart gagnaðila ætti að haldast óbreytt þrátt fyrir lok viðskiptasambands þeirra hefði gagnaðila verið í lófa lagið að haga rekstri félagsins þannig að yfirdráttarheimild hjá Íslandsbanka hf. væri ávallt fullnýtt en aðrar kröfur gerðar upp að fullu, þar sem hún þyrfti aldrei að greiða nema helming hennar. Þá telur leyfisbeiðandi að gagnaðili hafi í aðdraganda gjaldþrots Vistveru ehf. greitt kröfur sem tengdust henni persónulega í stað þess að gera upp kröfuna við Íslandsbanka hf. leyfisbeiðanda til tjóns. Einnig byggir leyfisbeiðandi á því að mikilvægt sé að Hæstiréttur fjalli um hvort rétt sé, eins og stendur á í málinu, að víkja til hliðar grundvallarreglum kröfuréttar um endurkröfurétt ábyrgðarmanns á hendur meðábyrgðarmanni.

6. Að virtum gögnum málsins verður hvorki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar