Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-134

Þriðjudagurinn 27. október 2026

Íslenska ríkið (Fanney Rós Þorsteinsdóttir ríkislögmaður)

gegn

Solveigu Jóhannsdóttur (Gísli Guðni Hall lögmaður)

Lykilorð

Kæruleyfi. Hæfi dómara. Vanhæfi. Lífeyrir. Samþykkt

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómarinn Skúli Magnússon og Árni Kolbeinsson og Helgi I. Jónsson fyrrverandi hæstaréttardómarar.

2. Með beiðni leitar íslenska ríkið leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að kæra úrskurð Landsréttar 17. september sama ár í máli nr. 603/2026: Íslenska ríkið gegn Solveigu Jóhannsdóttur. Gagnaðili tekur undir beiðnina.

3. Efniságreiningur aðila lýtur að lögmæti skerðingar á lífeyrisréttindum félaga í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins sem kynntar voru og komu til framkvæmda í tveimur skrefum á árinu 2023. Þessar ráðstafanir voru gerðar á grundvelli breytinga á lögum nr. 1/1997 um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins samkvæmt lögum nr. 127/2016.

4. Með úrskurði Landsréttar var staðfestur úrskurður dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur 14. júlí 2026 um að allir dómarar við dómstólinn vikju sæti í málinu samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 50/2016, sbr. g-lið 5. gr. laga nr. 91/1991. Í forsendum Landsréttar kom fram að rétturinn hefði kallað eftir upplýsingum frá Héraðsdómi Reykjavíkur um lífeyrisgreiðslur dómara. Samkvæmt þeim væru allir núverandi dómarar við dómstólinn félagar í A-deild lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Að öðru leyti var í úrskurði réttarins vísað til forsendna úrskurðar dómstjóra.

5. Í úrskurði dómstjóra var rakið að ágreiningur aðila sneri meðal annars að því hvort fjárframlag leyfisbeiðanda til A-deildar lífeyrissjóðsins samkvæmt bráðabirgðaákvæði 7. gr. f (XIII.) laga nr. 127/2016 hefði í raun verið til þess fallið að koma áfallinni stöðu hennar í jafnvægi. Yrði fallist á að fjárframlagið hefði verið of lágt og andstætt lögum væri fyrirsjáanlegt að það kynni að hafa bein og óbein áhrif á réttindi sjóðfélaga í A-deild án tillits til þess hvenær greiðslur vegna þeirra til deildarinnar hófust. Yrði samkvæmt þessu að ætla að aðrir dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur væru í sömu stöðu og sá dómari sem vék sæti með úrskurði dómsins 17. nóvember 2025 og staðfestur var með úrskurði Landsréttar 17. apríl 2026 í máli nr. 841/2025. Hagsmunir þessara dómara af úrlausn málsins væru í senn umtalsverðir og sérstakir. Væri þá horft til þess að efnislega liti málið að því hvort heimilt hefði verið samkvæmt 72. gr. stjórnarskrár að gera þá grundvallarbreytingu á lífeyrisréttindum ríkisstarfsmanna að afnema tryggingu launagreiðanda á lögbundnum réttindum sjóðfélaga í A-deild, eins og áður leiddi af II. kafla laga nr. 1/1997, sbr. einkum þágildandi 4. mgr. 13. gr. þeirra laga. Sameiginlegir hagsmunir þeirra af úrlausn málsins væru því mun víðtækari en sú fjárkrafa sem gagnaðili tefldi fram í stefnu. Var það niðurstaða dómstjóra að fyrir hendi væru aðstæður þar sem óhlutdrægni allra dómara við dómstólinn mætti með réttu draga í efa og ekki yrði undan því vikist að þeir, þar með talinn dómstjóri, vikju sæti í málinu.

6. Leyfisbeiðandi byggir á því að niðurstaða hins kærða úrskurðar sé röng og of langt sé gengið í túlkun á g-lið 5. gr. laga nr. 91/1991. Dómarar hljóti einungis að víkja sæti í undantekningartilvikum og því beri að skýra ákvæðið þröngt. Þeir dómarar sem hófu að greiða í A-deild lífeyrissjóðsins eftir að lög nr. 127/2016 tóku gildi séu ekki í sömu stöðu og gagnaðili. Þessir dómarar hafi gengið að tilteknu kerfi sem byggði á ákveðnum forsendum og ætlaðar ólögmætar skerðingar á lífeyrisréttindum eigi ekki við um þá. Hinu sama gegni um þá dómara sem hafi verið 60 ára eða eldri við gildistöku breytingarlaganna. Leyfisbeiðandi byggir einnig á því að kæruefnið hafi fordæmisgildi um skýringu g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991. Loks hafi það grundvallarþýðingu fyrir meðferð málsins en ætla megi að flestir ef ekki allir héraðsdómarar landsins teljist hafa hagsmuni af niðurstöðu málsins standi hinn kærði úrskurður óhaggaður.

7. Að virtum gögnum málsins verður talið að úrlausn um kæruefnið geti haft fordæmisgildi um skýringu 1. mgr. 34. gr. laga nr. 50/2016, sbr. g-lið 5. gr. laga nr. 91/1991. Beiðni um kæruleyfi er því samþykkt.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar