Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-102
Miðvikudagurinn 14. október 2026
A (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður)
gegn
B (Unnar Steinn Bjarndal lögmaður)
Lykilorð
Áfrýjunarleyfi. Hjúskapur. Lögskilnaður. Fjárslit milli hjóna. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Með beiðni leitar A leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 4. júní sama ár í máli nr. 357/2025: A gegn B. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.
3. Mál þetta lýtur að kröfu gagnaðila um lögskilnað. Leyfi til skilnaðar að borði og sæng var gefið út 28. desember 2018. Gagnaðili óskaði eftir leyfi til lögskilnaðar 12. júní 2023 en sýslumaður vísaði skilnaðarmálinu frá á þeim grundvelli að hann gæti ekki veitt leyfi til lögskilnaðar þar sem leyfisbeiðandi vildi ekki halda sig við fjárskiptasamning aðila frá 28. desember 2018. Ágreiningur aðila lýtur einkum að því hvort réttaráhrif skilnaðar að borði og sæng hafi fallið niður áður en gagnaðili óskaði lögskilnaðar sem og um gildi fjárskiptasamningsins.
4. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms og veitti gagnaðila lögskilnað frá leyfisbeiðanda en vísaði frá héraðsdómi kröfu um að leyfisbeiðanda yrði gert skylt að undirrita tiltekna skiptayfirlýsingu. Landsréttur taldi að leysa bæri úr fyrirliggjandi kröfu um lögskilnað eftir hjúskaparlögum nr. 31/1993 eins og þau voru fyrir gildistöku breytingarlaga nr. 71/2022 sem öðluðust gildi 1. júlí 2023. Landsréttur lagði til grundvallar að sambúð aðila hefði lokið fljótlega eftir að þeim var veittur skilnaður að borði og sæng í lok árs 2018. Þá taldi rétturinn að leyfisbeiðandi hefði ekki tekist sönnun þess að réttaráhrif skilnaðar að borði og sæng hefðu fallið niður á grundvelli 35. gr. hjúskaparlaga með því að aðilar hefðu hafið sambúð að nýju. Enn fremur taldi rétturinn að málsástæða á grundvelli 1. mgr. 95. gr. hjúskaparlaga um ógildi fjárskiptasamnings kæmi ekki til álita í málinu með vísan til 5. mgr. 101. gr. og 2. mgr. 163. gr. laga nr. 91/1991. Loks vísaði Landsréttur til þess að leyfisbeiðandi hefði ekki leitað eftir ógildingu fjárskiptasamnings aðila á grundvelli 2. mgr. 95. gr. hjúskaparlaga eða reglna fjármunaréttar. Hann var því lagður til grundvallar við mat á því hvort uppfyllt væru lagaskilyrði fyrir lögskilnaði.
5. Leyfisbeiðandi byggir á því að öll atriði 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 eigi við um málið. Hann vísar til þess að Landsréttur hafi ekki dæmt um allar málsástæður sem hafi verið hafðar uppi í héraði. Leyfisbeiðandi hafi byggt á því að fjárskiptasamningur aðila væri ógildur á grundvelli ógildingarreglna samningalaga nr. 7/1936 og tómlætis en rétturinn látið hjá líða að fjalla um þær málsástæður. Í áratugi hafi verið talið unnt að bera fyrir sig ógildingarreglur samningalaga þegar krafist sé efnda á samningi án þess að stefna þurfi sérstaklega til ógildingar. Þá vísar leyfisbeiðandi til þess að niðurstöðu Landsréttar um sönnun sé ábótavant. Þannig hafi Landsréttur ranglega talið að tímasetningar í málinu feli ekki í sér sönnun um að aðilar hafi tekið saman aftur. Leyfisbeiðandi telur jafnframt að niðurstaða málsins geti haft verulega almenna þýðingu. Þá sé mikilvægt að reglur íslensks réttar séu skýrar um hvað teljist til sambúðar og málið varði því mikilvæga almenna hagsmuni. Þá sé túlkun Landsréttar á hugtakinu sambúð ekki í samræmi við dóm Hæstaréttar 16. október 2008 í máli nr. 46/2008.
6. Að virtum gögnum málsins verður hvorki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður hvorki séð að málsmeðferð fyrir héraðsdómi eða Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant né að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi eða efni, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.