Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

Mál nr. 2026-72

Þriðjudagurinn 30. júní 2026

B (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)

gegn

A (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)

Lykilorð

Kæruleyfi. Fjárslit milli hjóna. Opinber skipti. Samþykkt

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Sigurður Tómas Magnússon, Karl Axelsson og Skúli Magnússon.

2. Með beiðni 5. maí 2026 leitar B leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 2. mgr. 133. gr. laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl., til að kæra úrskurð Landsréttar 22. apríl sama ár í máli nr. 10/2026: A gegn B. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.

3. Ágreiningur aðila lýtur að því hvort beita skuli skáskiptareglu 104. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 við opinber fjárskipti þeirra. Gagnaðili krafðist þess aðallega að fasteignir að C og D kæmu óskipt í hans hlut en 50% eignarhlutur leyfisbeiðanda í fasteigninni E óskipt í hennar hlut. Til vara að 2/3 eignarhlutar í fasteignunum C og D kæmu í hans hlut og 50% eignarhlutur leyfisbeiðanda í E kæmi til skipta á grundvelli helmingaskiptareglu en tilteknum áhvílandi lánum haldið utan skipta. Auk þess að 2/3 hlutar skuldar gagnaðila við húsfélag að C félli undir skiptin og að nánar tilgreindum kröfum leyfisbeiðanda sem lutu að afnotum gagnaðila af D og afborgunum af áhvílandi láni vegna sömu fasteignar yrði hafnað. Þá gerði gagnaðili einnig nánar tilgreinda þrautavarakröfu sem ekki verður rakin hér.

4. Með héraðsdómi var kröfu gagnaðila um skáskipti hafnað. Dómurinn lagði til grundvallar að ekki væri bersýnilega ósanngjarnt fyrir gagnaðila að beita helmingaskiptareglunni við fjárskiptin, einkum með hliðsjón af eignastöðu við upphaf sambúðar, tekjuöflun aðila á hjúskapartíma, mikilli fjárhagslegri samstöðu í hjúskap og stöðu þeirra við lok hans sem og löngum sambúðar- og hjúskapartíma. Landsréttur hafnaði aðalkröfu gagnaðila en féllst að hluta til á varakröfu hans þannig að í hlut hans kæmu 2/3 hlutar í fasteignunum C og D. Lagt var til grundvallar að gagnaðili hefði flutt yfir fjórum sinnum meiri verðmæti í búið en leyfisbeiðandi við stofnun hjúskapar þeirra. Þá var litið til aldurs málsaðila sem og þeirra fjárhæða sem um ræddi. Jafnframt var tekið tillit til þess að aðilar ættu ekki barn saman, að þau hefðu hafið sambúð þegar þau voru komin yfir fertugt og gengið í hjúskap á sextugsaldri. Loks var litið til upplýsinga um skert aflahæfi gagnaðila eftir vinnuslys.

5. Leyfisbeiðandi byggir á því úrslit málsins hafi verulegt fordæmisgildi, einkum um túlkun 1. mgr. 104. gr. hjúskaparlaga og hvernig meta eigi orðalagið „við hjúskaparstofnun“ þegar hjónaband hefst í beinu framhaldi af margra ára óvígðri sambúð. Af úrskurði Landsréttar leiði að heimilt sé að aðskilja mat á fjárhagslegri samstöðu á langvarandi sambúðartíma frá mati á eignastöðu við formlega hjúskaparstofnun þannig að eignastaða og fjárhagur við upphaf sambúðar hafi ekki þýðingu. Úrslit málsins hafi einnig fordæmisgildi um beitingu skáskiptareglu þar sem veruleg fjárhagsleg samstaða hefur myndast. Þá byggir leyfisbeiðandi einnig á því að úrskurður Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni og telur hann ganga í berhögg við fastmótaða dómaframkvæmd Hæstaréttar og Landsréttar um að skilyrði skáskipta séu ekki uppfyllt þegar veruleg fjárhagsleg samstaða hafi myndast með aðilum í langvarandi sambúð og síðar hjúskap. Loks er á því byggt að málið varði mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda sem hafi varið á annan áratug af ævi sinni í að byggja upp sameiginlegan fjárhag og heimili með gagnaðila, notað lánstraust sitt og selt eignir í þágu fjölskyldu þeirra.

6. Að virtum gögnum málsins verður talið að úrlausn um kæruefnið geti haft fordæmisgildi þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991. Beiðni um kæruleyfi er því samþykkt.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar