Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-116

Fimmtudagurinn 15. október 2026

A (Hjördís E. Harðardóttir lögmaður)

gegn

VÍS tryggingum hf. (Heiðar Örn Stefánsson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Örorkumat. Orsakatengsl. Sönnun. Matsgerð. Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ásgerður Ragnarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon

2. Með beiðni 14. júlí 2026 leitar A leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 25. júní sama ár í máli nr. 597/2025: VÍS tryggingar hf. gegn A. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.

3. Mál þetta varðar kröfu leyfisbeiðanda um greiðslu 6.002.048 króna, auk vaxta, úr hendi gagnaðila vegna líkamstjóns sem hún telur sig hafa orðið fyrir þegar bifreið, sem vátryggð var hjá gagnaðila, ók aftan á kyrrstæða bifreið sem leyfisbeiðandi var farþegi í. Ágreiningur aðila snýr að því hvort orsakatengsl séu milli slyssins og þeirra einkenna sem leyfisbeiðandi reisir dómkröfu sína á.

4. Héraðsdómur taldi að leyfisbeiðandi hefði sýnt nægilega fram á að hún hefði orðið fyrir varanlegu líkamstjóni sem rakið yrði til umferðarslyssins og féllst á kröfu hennar um skaðabætur í samræmi við niðurstöðu matsgerðar læknis sem leyfisbeiðandi hafði aflað. Með dómi Landsréttar var gagnaðili hins vegar sýknaður af kröfu leyfisbeiðanda. Landsréttur tók fram að leyfisbeiðandi hefði aflað fyrrnefndrar matsgerðar einhliða og gagnaðila ekki verið gefinn kostur á að gæta hagsmuna sinna við gerð hennar. Þá mætti ráða af niðurstöðu matsmanns að hann hefði látið hjá líða að taka afstöðu til nánar tilgreindra heilsufarsupplýsinga sem hefðu getað skipt máli við matið. Matsmaðurinn hafi heldur ekki haft undir höndum önnur gögn um áreksturinn en tjónstilkynningu til gagnaðila. Taldi Landsréttur því að matsgerðin fæli í sér svo ótrausta sönnun um líkamstjón leyfisbeiðanda að ekki yrði á henni byggt í málinu. Þá yrði bótakröfu leyfisbeiðanda ekki fundin stoð í öðrum gögnum málsins.

5. Leyfisbeiðandi telur að veita beri áfrýjunarleyfi með vísan til 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 og byggir það í fyrsta lagi á því að úrslit málsins varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni sína. Vísar hún um það til þeirra líkamlegu og fjárhagslegu afleiðinga sem slysið hafi haft. Í öðru lagi byggir hún á því að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni til. Rökstuðningur Landsréttar sé mun rýrari en rökstuðningur héraðsdóms. Héraðsdómur hafi rakið ítarlega fyrirliggjandi upplýsingar um heilsufar leyfisbeiðanda fyrir slysið og dregið ályktanir af samanburði við rannsóknir á heilsufari hennar eftir slysið. Í dómi Landsréttar sé hins vegar ranglega byggt á því að matsmaður hafi ekki tekið tillit til heilsufarsupplýsinga sem lágu fyrir við matið. Brýnt sé að fá endanlega niðurstöðu Hæstaréttar í málinu, einkum í ljósi þess að afstaða sérfróðra meðdómsmanna virðist hafa haft mikla þýðingu á báðum dómstigum. Því liggi fyrir vafi um hvor eigi að hafa meira vægi, sérfróður meðdómsmaður í héraði eða Landsrétti.

6. Að virtum gögnum málsins verður ekki litið svo á að úrslit þess varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni til, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Er jafnframt haft í huga að eins og hér háttar til er ekki á færi Hæstaréttar að endurmeta niðurstöðu um þau sérfræðiatriði sem beiðnin lýtur að. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar