Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-117
Miðvikudagurinn 21. október 2026
Hagtak hf. (Ólafur Eiríksson lögmaður)
gegn
VÍS tryggingum hf. (Ólafur Lúther Einarsson lögmaður)
Lykilorð
Áfrýjunarleyfi. Matsgerð. Munatjón. Tjón. Vátrygging. Vátryggingarsamningur. Yfirmat. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ásgerður Ragnarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Með beiðni 16. júlí 2026 leitar Hagtak hf. leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 25. júní sama ár í máli nr. 397/2025: VÍS tryggingar hf. gegn Hagtaki hf. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.
3. Mál þetta lýtur að ágreiningi um fjárhæð vátryggingarbóta vegna tjóns á dýpkunargröfu og staðsetningartæki árið 2022 sem auk uppsetningar voru tryggð lausafjártryggingu hjá gagnaðila. Ágreiningurinn snýr einkum að því hvort miða skuli fjárhæð bóta við viðgerðarkostnað eða verðmæti dýpkunargröfunnar á tjónsdegi og þá ýmist á grundvelli enduröflunarverðs eða annars mælikvarða.
4. Með dómi Landsréttar var gagnaðila gert að greiða leyfisbeiðanda 21.425.000 krónur að frádregnum greiðslum sem hann hafði þegar innt af hendi. Héraðsdómur hafði gert gagnaðila að greiða leyfisbeiðanda 77.019.510 krónur að frádreginni innborgun. Undir rekstri málsins í héraði hafði verið aflað matsgerðar og tók héraðsdómur mið af niðurstöðu hennar um að altjón hefði orðið á gröfunni og að verðmæti á tjónsdegi hefði samsvarað kostnaði við að kaupa sambærilega notaða gröfu erlendis frá og gera hana vinnufæra, auk flutningskostnaðar. Fyrir Landsrétti var aflað yfirmats og eftir að það lá fyrir greiddi gagnaðili leyfisbeiðanda 6.275.000 krónur. Yfirmatsmenn töldu að unnt væri að gera við gröfuna þannig að hún yrði í svipuðu ástandi og fyrir tjónsatburð. Í samræmi við þá niðurstöðu lagði Landsréttur til grundvallar að gagnaðila bæri að greiða leyfisbeiðanda bætur sem næmu viðgerðarkostnaði gröfunnar. Þá var gagnaðila gert að greiða leyfisbeiðanda bætur vegna tjóns á staðsetningartækinu, miðað við verðmæti þess á tjónsdegi, sem þóttu hæfilega ákveðnar í samræmi við niðurstöðu yfirmatsmanna um hálfvirði nýs slíks búnaðar að meðtalinni uppsetningu. Auk þess var gagnaðila gert að greiða leyfisbeiðanda kostnað vegna flutnings og uppsetningar á gröfunni sem metinn var að álitum.
5. Leyfisbeiðandi byggir á því að málið hafi verulegt almennt gildi. Í fyrsta lagi hafi málið mikla þýðingu þegar kemur að öflun og framlagningu matsgerða eftir áfrýjun til Landsréttar. Yfirmatsgerð í málinu hafi ekki verið skilað innan gagnaöflunarfrests heldur innan við þremur vikum fyrir aðalmeðferð og telur leyfisbeiðandi að ekki hefði átt að líta til hennar við úrlausn málsins. Þá hafi Landsréttur heimilað framlagningu yfirmatsgerðarinnar að því er virðist með þeim einu rökum að rétturinn hefði á sínum tíma samþykkt dómkvaðningu. Í öðru lagi vísar leyfisbeiðandi til þess að málið hafi fordæmisgildi um viljayfirlýsingar innan samningssambands. Gagnaðili hafi upphaflega kosið að greiða bætur miðað við verðmæti gröfunnar á tjónsdegi. Hann hafi tekið ákvörðun um tiltekna uppgjörsaðferð og beri hallann af því ef skilyrði til hennar voru ekki uppfyllt. Eftir málshöfðun hafi hann í greinargerð haft uppi varakröfu um að honum nægði að greiða áætlaðan viðgerðarkostnað ef verðmæti dýpkunartækisins reyndist meira en hann hafi gengið út frá. Leyfisbeiðandi telur niðurstöðu Landsréttar um að taka mið af viðgerðarkostnaði ekki standast og að nauðsynlegt sé að Hæstiréttur skeri úr um hvernig yfirlýsingar um framkvæmd og uppgjör vátryggingarsamnings horfi við almennum reglum samninga- og kröfuréttar um loforð og ákvaðir innan samningssambands. Loks byggir leyfisbeiðandi á því að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni.
6. Að virtum gögnum málsins verður ekki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.