Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-121
Miðvikudagurinn 28. október 2026
A (Oddgeir Einarsson lögmaður)
gegn
Garðabæ, (Magnús Ingvar Magnússon lögmaður) B og C (Ívar Pálsson lögmaður)
Lykilorð
Áfrýjunarleyfi. Börn. Forsjá. Barnavernd. Fóstur. Fóstursamningur. Stjórnsýsla. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ásgerður Ragnarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Með beiðni 23. júlí 2026 leitar A leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 25. júní sama ár í máli nr. 195/2026: A gegn Garðabæ, B og C. Gagnaðilar leggjast gegn beiðninni.
3. Leyfisbeiðandi er faðir barnanna D og E. Móðir barnanna fór ein með forsjá þeirra þar til hún afsalaði forsjánni til barnaverndarþjónustu Garðabæjar 22. maí 2024. Gagnaðili Garðabær gerði 16. júní 2025 varanlega fóstursamninga við gagnaðila B og C vegna barnanna en þau höfðu verið vistuð hjá gagnaðilunum á grundvelli tímabundinna fóstursamninga frá september 2021. Leyfisbeiðandi fór þess á leit við barnaverndarþjónustu Garðabæjar að honum yrði falin forsjá barnanna en þeirri kröfu var hafnað 23. apríl 2025. Mál þetta lýtur að kröfu leyfisbeiðanda um ógildingu fyrrgreindra fóstursamninga og ákvörðunar barnaverndarþjónustu um að synja honum um forsjá barnanna.
4. Með dómi Landsréttar var héraðsdómur staðfestur um sýknu gagnaðila. Landsréttur rakti að barnaverndarþjónusta Garðabæjar hefði með ákvörðunum 23. apríl 2025 bæði fært rök fyrir því að forsjá barnanna yrði ekki falin leyfisbeiðanda og að þau skyldu áfram vistuð í fóstri. Fjallað var um mat á forsjárhæfni leyfisbeiðanda en meðal annars tekið fram að hann hefði færst undan að fara í frekari rannsóknir til að sannreyna neyslu áfengis og vímuefna. Jafnframt var vikið að afstöðu og vilja barna leyfisbeiðanda og meðal annars rökstutt að þau væru í hollustuklemmu. Börnin byggju við öruggar og þroskavænlegar aðstæður á heimili fósturforeldra sinna, þar sem þau hefðu búið frá árinu 2021, og væru það grundvallarréttindi barna að búa við stöðugleika í uppvexti. Þá hefði verið gætt að málsmeðferðarreglum barnaverndarlaga og stjórnsýsluréttar og væru hinar umdeildu ákvarðanir í samræmi við grundvallarreglur barnaréttar.
5. Leyfisbeiðandi byggir á því að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi. Í fyrsta lagi þurfi Hæstiréttur að marka skýrt fordæmi um að dómstólum beri að endurskoða efnislegt mat barnaverndaryfirvalda þegar sýnt sé fram á að ákvörðun stangist á við hagsmuni barns og sérfræðileg gögn. Í öðru lagi sé brýnt að rétturinn fjalli um þær kröfur sem þurfi að vera uppfylltar til að líta fram hjá skýrum og afdráttarlausum vilja 12 ára barns sem og niðurstöðu matsmanns. Í þriðja lagi hafi málið fordæmisgildi um valdmörk barnaverndarþjónustu, beitingu meðalhófsreglu og samspil við stjórnarskrárvarin réttindi til friðhelgi fjölskyldu og einkalífs. Þá hafi í fjórða lagi ekki verið tekið tillit til hás aldurs fósturforeldra við mat á langtíma stöðugleika barns í fóstri. Leyfisbeiðandi byggir einnig á því að úrslit málsins varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni hans og að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur.
6. Að virtum gögnum málsins verður hvorki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þótt í dómi Landsréttar hafi verið vísað til forsendna héraðsdóms, sem meðal annars hafa að geyma lýsingu á endurskoðunarvaldi dómstóla í barnaverndarmálum sem ekki fær staðist, verður ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi eða efni, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.