Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

Mál nr. 2024-44

Þriðjudagurinn 28. maí 2024

Sæstjarnan ehf. (Guðbjörg Benjamínsdóttir hdl. )

gegn

Íslandsbersa ehf. (Grímur Sigurðsson lögmaður)

Lykilorð

Afsal. Áfrýjunarleyfi. Hafnað. Kaupsamningur. Skip. Veiðiheimildir

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 u,m dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

2. Með beiðni 27. mars 2024 leitar Sæstjarnan ehf. leyfis Hæstaréttar til að áfrýja dómi Landsréttar 1. sama mánaðar í máli nr. 690/2022: Sæstjarnan ehf. gegn Íslandsbersa ehf. á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Gagnaðili leggst gegn beiðninni

3. Málið lýtur að kröfu leyfisbeiðanda um að gagnaðila verði gert skylt með dómi að gefa út afsal til leyfisbeiðanda fyrir skipinu Birnu BA-154 gegn greiðslu 3.500.000 króna.

4. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu gagnaðila að svo stöddu af kröfu leyfisbeiðanda. Í dómi Landsréttar var rakið að með undirritun kaupsamnings hefði leyfisbeiðandi öðlast skilyrtan eignarrétt á hinum selda bát. Samkvæmt samningnum hvíldi sú skylda á leyfisbeiðanda að greiða eftirstöðvar kaupverðsins á þeim tíma sem um var samið og efna samningsskuldbindingar sínar að öðru leyti. Þá væri sérstaklega tekið fram í kaupsamningnum að afsal yrði gefið út þegar lokagreiðsla hefði verið innt af hendi. Í útgáfu afsals fælist að jafnaði yfirlýsing seljanda um að kaupandi hefði að fullu efnt skyldur sínar samkvæmt kaupsamningi. Af dómaframkvæmd mætti ráða, að þegar fiskveiðilöggjöf væri breytt á þann veg að veiðar sem áður voru frjálsar yrðu háðar takmörkunum, aflaheimildum úthlutað samkvæmt nýjum reglum á grundvelli fyrri veiðireynslu og ekkert kveðið á um það í kaupsamningi hverjum þær veiðiheimildir skuli tilheyra, eigi seljandi að jafnaði rétt á að fá þær heimildir framseldar. Samkvæmt því yrði að fallast á að gagnaðili hefði átt rétt á að fá í sinn hlut þær veiðiheimildir sem skipið Birna BA-154 fékk úthlutað. Leyfisbeiðandi hefði neitað að samþykkja framsal á þessum réttindum til gagnaðila og því væri að óbreyttu ekki unnt að fallast á kröfu hans um að gagnaðili gæfi út afsal til hans fyrir bátnum. Leyfisbeiðandi hefði hvorki greitt eftirstöðvar kaupverðsins í samræmi við efni kaupsamningsins né boðið fram greiðslu á vöxtum til fullnaðaruppgjörs.

5. Leyfisbeiðandi byggir á því að héraðsdómur og Landsréttur hafi farið út fyrir kröfur aðila með dómum sínum og þannig brotið gegn meginreglu einkamálaréttarfars um málsforræði aðila. Afleiðingin sé sú að leyfisbeiðandi verði að giska á hver hin rétta fjárhæð lokagreiðslu kaupverðs sé enda hafi gagnaðili aldrei krafist dráttarvaxta. Þá telur leyfisbeiðandi að dómar Hæstaréttar í málum nr. 226/2003 og 217/2003 sem Landsréttur vísi til í niðurstöðu sinni eigi ekki við í málinu og sé dómurinn í raun í andstöðu við þessi fordæmi. Að lokum byggir leyfisbeiðandi á því að fái dómur Landsréttar að standa sé 2. mgr. 12. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða í raun marklaus.

6. Að virtum gögnum málsins verður hvorki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.

https://landsrettur.is/domar-og-urskurdir/domur-urskurdur/?id=f1fc2347-d0a0-4006-a691-d18761486973&verdictid=7b4c488b-759b-4943-80e1-365018069845

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar