Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-96

Mánudagurinn 5. október 2026

Brynhildur Briem, Hannes Þór Sigurðsson, Jón Benjamín Jónsson, Örn Ingi Ingvarsson, Ólafur Arnar Jónsson og Ölhóll ehf. (Sif Konráðsdóttir lögmaður)

gegn

íslenska ríkinu, Umhverfis- og orkustofnun, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (Þorvaldur Hauksson lögmaður), Landsvirkjun (Guðjón Ármannsson lögmaður), Jóni Árna Vignissyni, Náttúruverndarsamtökum Íslands og Veiðifélagi Þjórsár (enginn)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Stjórnsýsla. Stjórnvaldsákvörðun. Lögskýring. Umhverfi. Raforka. Vatnamál. EES-samningurinn. Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Skúli Magnússon.

2. Með beiðni 24. júní 2026 leita Brynhildur Briem, Hannes Þór Sigurðsson, Jón Benjamín Jónsson, Örn Ingi Ingvarsson, Ólafur Arnar Jónsson og Ölhóll ehf. leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 175. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja beint til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 10. sama mánaðar í máli nr. E-106/2026: Brynhildur Briem, Hannes Þór Sigurðsson, Jón Benjamín Jónsson, Örn Ingi Ingvarsson, Ólafur Arnar Jónsson og Ölhóll ehf. gegn íslenska ríkinu, Umhverfis- og orkustofnun, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, Landsvirkjun, Jóni Árna Vignissyni, Náttúruverndarsamtökum Íslands og Veiðifélagi Þjórsár. Gagnaðilar íslenska ríkið, Umhverfis- og orkustofnun, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun og Landsvirkjun leggja í mat Hæstaréttar hvort orðið skuli við beiðninni. Gagnaðilar Jón Árni Vignisson, Náttúruverndarsamtök Íslands og Veiðifélag Þjórsár hafa ekki látið málið til sín taka.

3. Í málinu er deilt um ákvarðanir er varða áform gagnaðila Landsvirkjunar um að reisa og reka Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár. Annars vegar er deilt um ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar 12. desember 2025 um veitingu virkjunarleyfis og heimild til breytinga á vatnshlotunum Þjórsá 1 og Þverá og hins vegar úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála 15. febrúar 2018 um synjun á ógildingu ákvörðunar Skipulagsstofnunar 16. desember 2015 um endurskoðun matsskýrslu fyrir virkjunina. Leyfisbeiðendur eru eigendur fasteigna sem liggja nærri fyrirhuguðu athafnasvæði virkjunarinnar.

4. Með héraðsdómi voru gagnaðilar sýknaðir af kröfum leyfisbeiðenda. Héraðsdómur féllst ekki á kröfu gagnaðila íslenska ríkisins, Umhverfis- og orkustofnunar og Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um að vísa frá dómi kröfu leyfisbeiðenda um ógildingu fyrrnefnds úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Héraðsdómur hafnaði hins vegar öllum sjónarmiðum leyfisbeiðenda um ógildingarannmarka á úrskurðinum og ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar. Þannig taldi héraðsdómur meðal annars að bæði úrskurðarnefndin og Umhverfis- og orkustofnun hefðu tekið fullt tillit til meginreglna náttúruverndarlaga nr. 60/2013 og féllst ekki á sjónarmið um brot á rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ranga túlkun eða beitingu 12. gr. þágildandi laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum eða skort á skýrleika þess ákvæðis. Að sama skapi taldi héraðsdómur að mati Umhverfis- og orkustofnunar hefði í engu verið áfátt um hvort skilyrðum 18. gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála væri fullnægt.

5. Leyfisbeiðendur byggja á því að dómur Hæstaréttar í málinu hefði verulegt fordæmisgildi, meðal annars fyrir skýringu laga nr. 36/2011 og skýringu raforkulaga, einkum um skilyrði fyrir leyfisveitingu vegna vatnsaflsvirkjana sem sæta umhverfismati samkvæmt lögum nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Þá telja leyfisbeiðendur að dómur Hæstaréttar í málinu hefði fordæmisgildi um skýringu á bindandi réttaráhrifum samkvæmt 116. gr. laga nr. 91/1991. Eins telja leyfisbeiðendur að niðurstaða málsins gæti haft almenna þýðingu fyrir beitingu réttarreglna og vísa um það aðallega til sömu raka og lágu til grundvallar ákvörðun Hæstaréttar nr. 2025-18. Einnig hefði þýðingu að skera úr um túlkun á tímafresti 12. gr. þágildandi laga nr. 106/2000. Enn fremur vísa leyfisbeiðendur til þess að niðurstaða málsins hafi verulega samfélagslega þýðingu, einkum vegna áhrifa virkjunarinnar á lífríki og veiði í Þjórsá, en gagnaðili Landsvirkjun hafi þegar hafið undirbúningsframkvæmdir vegna hennar. Loks telja leyfisbeiðendur að engin þörf sé á að leiða vitni í málinu og enginn ágreiningur sé uppi um sönnunargildi munnlegs framburðar sem gefinn hafi verið fyrir héraðsdómi.

6. Að virtum gögnum málsins verður ekki talið að dómur í því hafi slíkt fordæmisgildi, almenna þýðingu fyrir beitingu réttarreglna eða verulega samfélagslega þýðingu að öðru leyti að efni séu til að veita heimild til að héraðsdómi verði áfrýjað beint til Hæstaréttar á grundvelli 1. mgr. 175. gr. laga nr. 91/1991. Er þá jafnframt haft í huga að með dómi Hæstaréttar 9. júlí 2025 í máli nr. 11/2025 hefur rétturinn þegar fjallað um ýmis atriði sem lúta að áformum um að reisa og reka Hvammsvirkjun. Samkvæmt þessu verður beiðninni hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar